Tveir starfsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu smitaðir Starfsmaður á heilsugæslunni Sólvangi og starfsmaður heimahjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa greinst smitaðir af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 26.7.2021 11:45
Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi frá upphafi mælinga Á öðrum ársfjórðungi 2021 fæddust 1.270 börn. Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi síðan mælingar hófust árið 2010. Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á ársfjórðungnum. 26.7.2021 10:43
Víða skúrir á landinu í dag Suðaustlæg eða breytileg átt 3 til 10 metrar á sekúndu og skúrir verða á öllu landinu í dag. Lengst af verður þó þurrt og bjart á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu 9 til 19 gráður og hlýast verður á Austurlandi. 26.7.2021 09:11
Ný rannsókn segir stafræn samskipti verri en engin samskipti Samskipti við ættingja og vini í gegnum fjarfundabúnað ollu því að margt eldra fólk fann fyrir auknum einmanaleika. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á andlegri heilsu fólks í heimfaraldrinum í Bretlandi og Bandaríkjunum. 26.7.2021 08:04
Aldrei hafa fleiri almennir borgarar látist í Afganistan Almennir borgarar í Afganistan sem deyja í átökum hafa sjaldan eða aldrei verið fleiri en nú um stundir, síðan Sameinuðu þjóðirnar hófu að safna slíkum tölum í landinu. 26.7.2021 06:55
Fundu hníf á vettvangi slagsmála Í gærkvöldi var lögregla kölluð út vegna slagsmála fyrir utan íbúðahús í miðbænum. Þegar hana bar að garði hafði ástandið róast en lagt var hald á hníf sem fannst á vettvangi. Þetta segir í dagbók lögreglu. 26.7.2021 06:24
Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör. 22.7.2021 13:10
Mikil aukning í innbrotum og eignaspjöllum milli mánaða Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað. 22.7.2021 11:04
Ungur breti handtekinn fyrir fjársvik í gegnum Twitter auk fleiri netglæpa Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að 22 ára gamall breti hafi verið handtekinn á Spáni. Maðurinn er grunaður um að standa á bak við umfangsmikla tölvuárás á Twitter. 22.7.2021 10:32
Upplýsingafundur verður haldinn klukkan ellefu í dag Líkt fram kom eftir síðasta upplýsingafund, þá boða almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag, fimmtudaginn 22. júlí. 22.7.2021 08:06