Lögmaður hjá Skattinum hlaut verðlaun fyrir árangur í skipstjórn Fjölmennasta útskrift í sögu Tækniskólans fór fram í gær. Meðal útskrifaðra var Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir, sem hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í skipstjórnargreinum. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, með lögmannsréttindi og starfar hjá Skattinum. 27.5.2023 18:48
Buðu ferðamanni gistingu í fangageymslu Laust fyrir klukkan 06 í morgun barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluþjónar ræddu við manninn kom í ljós að um erlendan ferðamann var að ræða, sem gat með engu móti gefið upp hvar hann dveldi. Brugðist var á það ráð að bjóða honum gistingu í fangageymslu. 27.5.2023 17:48
Fékk 10 í meðaleinkunn í MH: „Ég reyndi bara alltaf að gera mitt besta“ Tómas Böðvarsson, nýsleginn stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, hlaut í gær hreina tíu í meðaleinkunn, fyrstur allra í sögu skólans. Hann vissi ekkert um afrekið fyrr en á útskriftarathöfninni í gær. 27.5.2023 07:01
Bændur verði að skila af sér fé til aflífunar Eftir að riðan kom upp í Miðfjarðarhólfi voru tvær hjarðir skornar niður í sóttvarnarhólfinu, sem innihéldu um 1500 fjár samtals. Greining sýna stendur nú yfir og að sögn yfirdýralæknis gengur greiningin nokkuð vel og hann er vongóður um að það takist að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins. 26.5.2023 23:31
Kennarar undirrituðu kjarasamninga Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara skrifuðu nú undir kvöld undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Um er að ræða skammtímasamninga til eins árs. 26.5.2023 20:39
Illviðri yfir fyrstu ferðahelgina: „Bílar gætu jafnvel fokið“ Lítið sem ekkert ferðaveður verður yfir hvítasunnuhelgina, sem oft er kölluð fyrsta ferðahelgi ársins. Veðurfræðingur segir bálhvasst verða í nótt og í fyrramálið en að bjart og fallegt verði yfir laugardaginn á vestanverðu landinu. 26.5.2023 19:59
Hlaut meðaleinkunn sem aldrei verður toppuð Sögulegt met var slegið á útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi í dag þegar Orri Þór Eggertsson var útskrifaður með hreina tíu í meðaleinkunn. Ljóst er að met Orra Þórs mun standa um ókomna tíð. 26.5.2023 18:55
Óþekktur maður kramdi bíl með gröfu Á níunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk á Kjalarnesi. Þar hafði bifreið verið kramin með gröfu. Lögregla veit ekki hver framdi skemmdarverkið bíræfna. 26.5.2023 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Álag á starfsfólk og rúmanýting á legudeildum er að skapa neyðarástand í heilbrigðiskerfinu segir formaður Læknafélags Reykjavíkur. Læknafélag Íslands biðlar til stjórnvalda um að grípa inn í. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 26.5.2023 18:01
Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman Dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra um skaðabætur til handa konu, sem var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir að löðrunga þrettán ára stúlku, hefur verið snúið við í Landsrétti. Landsréttur telur háttsemi konunnar hafa falið í sér gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum. 26.5.2023 17:54