Listinn yfir götur í Grindavík vegna verðmætabjörgunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum í Grindavík inn á skilgreind svæði í bænum í dag. 13.11.2023 10:06
Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Heimsþing kvenleiðtoga hefst í dag í Hörpu og taka yfir fimm hundruð kvenleiðtogar frá áttatíu löndum þátt í ár. Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavik Global Forum - Women Leaders, er nú haldið í sjötta sinn í samstarfi Women Political Leaders (WPL), ríkisstjórn Íslands, Alþingi og með stuðningi fjölmargra íslenskra og alþjóðlegra samstarfsaðila. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþings kvenleiðtoga. 13.11.2023 09:34
Vaktin: „Hlýhugur þjóðarinnar til Grindvíkinga gríðarlega mikill“ Skjálftavirkni hefur haldið áfram á Reykjanesskaga í dag. 13.11.2023 08:46
„Réttlætinu er fullnægt“ Lögmaður Ingós veðurguðs, sem hafði í dag betur í meiðyrðamáli fyrir Landsrétti, segir að niðurstaðan komi ekki á óvart og dómurinn sé réttur. „Réttlætinu er fullnægt.“ 10.11.2023 14:35
Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ 10.11.2023 14:08
Marel rýkur upp í milljarðaviðskiptum Gengi hlutabréfa í Marel hefur rokið upp um 6,12 prósent í Kauphöllinni það sem af er degi. Viðskipti með bréfin hafa verið miklum mun meiri í dag en síðustu tvo daga, þegar gengið hefur dalað, upp á ríflega 1,4 milljarða króna. 10.11.2023 13:31
Öflugur jarðskjálfti Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu um korter í eitt. Skjálftinn var af stærðinni 4,1. 10.11.2023 12:48
Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni. 10.11.2023 11:01
Wok On sver af sér tengsl við lagerinn Talsmaður veitingastaðakeðjunnar Wok On segir sárt að heyra að búið að sé að bendla veitingastaðinn við ólöglegan matvælalager í Sóltúni í Reykjavík. Eigandi lagersins komi ekki að daglegum rekstri Wok On en eigi þó hlut í tveimur útibúum keðjunnar og sjái Wok On fyrir húsnæði. 10.11.2023 10:05
Tók upp byssu þegar samstarfsmaður hótaði að spilla Top Gun Ástralskur lögreglumaður hefur verið sakfelldur fyrir að fara óvarlega með skotvopn eftir að hafa otað því að samstarfsfélaga. Sá hafði séð stórmyndina Top Gun: Maverick kvöldið áður og hótaði að spilla söguþræði hennar. 10.11.2023 09:50