Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ræddum að þetta gæti verið kveðju­gjöf“

Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi.

Baðlón sýknað af kröfum fyrr­verandi starfs­manns

Baðlón á suðvesturhorninu hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns sem lenti í vinnuslysi á hálu gólfi og hlaut áverka. Niðurstaðan var því sú að um óhappatilvik hafi verið að ræða sem vinnuveitandanum verður ekki kennt um með saknæmri háttsemi.

Drógu dauða lang­reyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“

Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð.

„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“

Fjallaleiðsögumanni brá verulega í brún þegar hann sá að tveir ungir menn höfðu haldið upp í Fálkaklett án nauðsynlegs búnaðar um miðja nótt í fyrrinótt. Þó að hann þekki það sjálfur að hafa verið ungur og vitlaus segir hann athæfi ungu mannanna stórhættulegt og geta hafa endað í stórslysi.

Ingólfur kaupir Ís­búð Vestur­bæjar

Félag ferðaþjónsins Ingólfs Ragnars Axelssonar, sem rekur Tröll ferðaþjónustu, hyggst kaupa Ísbúð Vesturbæjar af Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á 215 milljónir króna. Kaupin eru háð samþykki frá Samkeppniseftirlitinu.

Sjá meira