Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Tveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum. 20.10.2026 20:15
Eggert ráðinn til Litla spítalans Litli spítalinn ehf. hefur ráðið Eggert Eyjólfsson, yfirmann bráðalækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), til starfa. 20.10.2026 19:07
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19.10.2026 23:36
Sahara Ray látin Fyrirsætan Sahara Ray er látin aðeins 34 ára að aldri. Árið 2016 rataði hún í kastljósi fjölmiðla vegna ástarsambands með poppstjörnunni Justin Bieber. 19.10.2026 19:15
Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld í verslunarhúsnæði við Norðurbakka í Hafnarfirði. 19.10.2026 18:36
Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Þrír af fjórum stjórnarmönnum í nýkjörinni stjórn ungliðahreyfingar Vinstri grænna hafa áður skipað sæti á framboðslista Sósíalistaflokksins. Formaðurinn, sem skipaði 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi árið 2024, kveðst hafa skipt um flokk eftir að starf Sósíalista úti á landi hafi lagst af. 19.10.2026 18:00
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Í dag voru undirrituð afsal og önnur lokagögn vegna kaupa Ísaksskóla á fasteigninni að Bólstaðarhlíð 20. Þar með hefur Reykjavíkurborg lokið sölu á húsnæðinu og er skólinn aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem hefur verið heimili skólastarfsins um áratugaskeið. 19.10.2026 16:43
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Gul viðvörun er í gildi á öllu landinu. Slysavarnafélagið Landsbjörg greinir frá því að nú í eftirmiðdaginn hafi þó nokkrar björgunarsveitir á Ölfussvæðinu verið kallaðar út vegna yfirvofandi foktjóns. 18.10.2026 20:22
Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. 18.10.2026 19:43
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Maðurinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið á föstudag hét Arnþór Örlygsson. Hann var fæddur 16. júní 1979. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn. 18.10.2026 18:19