Landsliðskonur ósáttar vegna ummæla um laun Önnu Bjarkar Landsliðskonum í knattspyrnu og fleirum er verulega brugðið vegna ummæla sem féllu í hlaðvarpsþætti á mánudaginn. Þar kom fram sú skoðun að Anna Björk Kristjánsdóttir, sem samdi við Selfoss um helgina, væri á hærri launum en konur ættu skilið að fá. 20.5.2020 11:50
Bein útsending: Aðgerðir fyrir nýsköpun og vísindi „Út úr kófinu: vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar“ er yfirskrift blaðamannafundar sem forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra boða til í dag. 20.5.2020 11:15
Tveggja ára tvinnbíll fuðraði upp Tveggja ára gamall tvinnbíll fuðraði upp á Svínvetningabraut suðaustan af Blönduósi á sunnudag. Enginn slasaðist en bóndi sem varð vitni að brunanum segir hafa verið skuggalegt að sjá hve skammur tími leið frá því eldur kviknaði þar til bíllinn var að engu orðinn. 19.5.2020 16:28
Þingmanni blöskrar „sumargjöfin“ til Samherjabarnanna Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar og formaður atvinnuveganefndar, segir að koma verði í veg fyrir að milljarðar króna sem byggist á auðlindum þjóðarinnar renni á milli kynslóða hjá stórum útgerðarfélögum. 19.5.2020 15:46
Isavia fær sex milljarða króna lán Evrópski fjárfestingabankinn hefur samþykkt lánaádrátt Isavia upp á 40 milljónir evra sem samsvarar um 6,3 milljörðum króna. 19.5.2020 14:27
Blokkin á heimsenda fékk verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 fyrir handrit sitt að bókinni Blokkin á heimsenda. 19.5.2020 14:04
Heltist úr lestinni og lýsir yfir stuðningi við Guðmund Franklín Kristján Örn Elíasson, sem hafði boðið fram krafta sína til embættis forseta Íslands, hefur ákveðið að hætta við framboðið. Hann segist í stuttri yfirlýsingu styðja framboð Guðmundar Franklíns Jónssonar. 19.5.2020 12:28
Bein útsending: Streita, heilsa og félagslegt samhengi - Hvernig höfum við áhrif? Rannveig Sigurvinsdóttir, lektor við sálfræðisdeild HR, fjallar um streitu, heilsu og félagslegt samhengi í þriðjudagsfyrirlestri Háskólans í Reykjavík og Vísis. Fyrirlesturinn hefst klukkan tólf. 19.5.2020 11:15
Manúela og Jón Eyþór hætt saman Manúela Ósk Harðardóttir og Jón Eyþór Gottskálksson eru hætt saman. 19.5.2020 10:25
Sýknaður af ákæru um heimilisofbeldi og nauðgunarmál fellt niður Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið sýknaður af ákæru fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni. 18.5.2020 16:21