Tjáningin óendanlega verðmætari en starfið um borð 21 árs háseti á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni, þar sem nær allir smituðust á Covid-19 á þriggja vikna túr, segir hegðun útgerðarinnar í veikindum skipverja í takti við fyrri hegðun gagnvart starfsmönnum hvað öryggi og heilsu starfsmanna snertir. 24.10.2020 22:04
Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23.10.2020 16:38
Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23.10.2020 16:15
Dómur mildaður í ljótu líkamsárásarmáli Landsréttur hefur dæmt Hafstein Oddsson í fjögurra ára fangelsi fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum haustið 2016. Hafsteinn hlaut sex ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands í júlí í fyrra en dómurinn var mildaður um tvö ár. 23.10.2020 15:52
„Mér líður svo illa í skólanum að mig langar að deyja“ Móðir barns sem nýverið hætti í Sjálandsskóla í Garðabæ lýsir grimmu einelti í garð sonar síns í bæjarfélaginu, bæði í skólanum og á íþróttaæfingum hjá Stjörnunni. Svo slæmt var ástandið orðið að sonur hennar hafði orð á því að hann vildi deyja. Hún segir skólakerfið eiga erfitt með að taka á eineltismálum. 23.10.2020 14:33
Rannsókn á slysinu á byrjunarreit og upplýsinga óskað Lögreglan á Suðurlandi og Vinnueftirlit ríkisins rannsaka hvað gerðist þegar jarðýta féll til jarðar úr mikilli hæð í malarnámu í Þrengslunum í fyrrinótt. Karlmaður á sextugsaldri lést í slysinu. 23.10.2020 13:33
Ætlar að færa eftirlit með pósti á Sauðárkrók Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hefur í hyggju að Byggðastofnun taki yfir póstmál, hlutverk sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur haft með að gera hingað til. 23.10.2020 12:28
Einn harðasti KR-ingurinn fallinn frá Karl Óskar Agnarsson, einn harðasti KR-ingur landsins, er látinn 68 ára gamall. Karl Óskar þekkja allir sem hafa sótt kappleiki í vesturbænum undanfarna áratugi. 23.10.2020 11:25
Sex milljarðar í sjónmáli Sýn hefur náð samkomulagi við erlenda fjárfesta um einkaviðræður og helstu skilmála í tengslum við mögulega sölu og endurleigu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar í morgun. 23.10.2020 10:44