Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu. 13.8.2024 12:35
Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Allir sakborningar í stóru fíkniefnamáli þar sem kókaín var flutt í pottum sem farþegar höfðu með sér í skemmtiferðaskipi neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Það kom saksóknara og dómara í málinu í opna skjöldu að allir neituðu sök. 12.8.2024 15:43
Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps og aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann játaði þó vopna- og fíkniefnalagabrot í málinu. 12.8.2024 14:17
Þögull sem gröfin Birgir Halldórsson, sem hlaut sex og hálfs árs fangelsi í Landsrétti fyrir aðild að stóra kókaínmálinu, neitaði alfarið að svara spurningum sækjanda og verjanda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Birgir er einn fjögurra sem hlotið hafa dóm í málinu og Pétur Jökull Jónasson sá fimmti sem sætir ákæru fyrir aðild. 12.8.2024 12:17
Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Daði Björnsson, sem hlaut fimm ára fangelsi fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu árið 2022, neitaði því að Pétur Jökull Jónasson væri sá Pétur sem hann hefði hitt, rætt við í síma og gefið útlitslýsingu sem passaði við umræddan Pétur Jökul. Hann sagðist aðspurður ekki óttast neinn í tengslum við málið. 12.8.2024 11:03
Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Pétur Jökull Jónasson, sakborningur í stóra kókaínmálinu, kom af fjöllum þegar saksóknari spurði hann út í ýmis gögn sem virðast tengja hann við skipulagningu innflutnings á miklu magni kókaíns frá Brasilíu til Íslands. Hann neitar alfarið sök í málinu. 12.8.2024 10:35
Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Pétur Jökull Jónasson sem sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu svokallaða kemur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í máli hans fer fram. Fjórir hafa þegar hlotið dóma í málinu. 12.8.2024 09:21
Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Mikið álag er á deildum Landspítalans sem bitnar einna helst á bráðamóttökunni í Fossvogi. Yfir tvö hundruð manns hafa leitað á bráðamóttökuna undanfarna tvo daga. 9.8.2024 14:24
Patrik biðst afsökunar Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason biðst afsökunar á að hafa talað óvarlega í útvarpsþætti á FM957 í síðustu viku. Um misheppnað grín hafi verið að ræða. Hann fordæmi allt kynferðisofbeldi. 9.8.2024 11:46
Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Sérsveit ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan komu að umfangsmikilli lögregluaðgerð á Höfn í Hornafirði í gær. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist málið fíkniefnum. 9.8.2024 09:19