Badmintongoðsögn hannar jólakort Nýtt jólakort eftir Elsu Nielsen er komið í sölu hjá SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Nýja kortið, Júlaknús, er það þriðja og síðasta í jólakortaseríu sem Elsa hannaði fyrir SOS og gaf samtökunum í þágu góðs málefnis. Elsa hannaði einnig jólakort SOS síðastliðinn tvö ár, Jólahjarta og Jólaskór, og seldust þau upp en eru nú fáanleg aftur. 15.11.2021 22:01
Ákærður fyrir hrottalegt ofbeldi af öllum toga gagnvart sinni nánustu Karlmaður nokkur hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi yfir fimm ára tímabili gegn þáverandi unnustu sinni og eiginkonu. Um er að ræða ítrekuð kynferðisbrot, fjölda líkamsárása og stórfelldar ærumeiðingar sömuleiðis. Málið er til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. 15.11.2021 17:51
337 milljóna króna gjaldþrot Solstice Productions Gjaldþrot Solstice Productions, sem stóð fyrir tónlistarhátíðinni Secret Solstice, nam 337 milljónum króna. Engar eignir fundust í þrotabúinu upp í skuldir. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. 15.11.2021 09:06
Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hagkaupum í Garðabæ Lögregla og sjúkrateymi var kallað út í Hagkaupum í Garðabæ á öðrum tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki Hagkaupa var um að ræða slagsmál fyrir utan verslunina. Tveir hlutu stungusár í átökunum. 13.11.2021 01:43
Fjölskylda Wagstaff fær níu milljónir vegna flugslyssins Ekkju og þremur börnum kanadíska flugmannsins Arthur Grant Wagstaff sem fórst í flugslysi í Barkárdal í ágúst 2015 hafa verið dæmdar samanlagt um níu milljónir króna í bætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12.11.2021 16:44
Beraði kynfærin í viðurvist ungrar stúlku að loknum ljósatíma Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa berað og handleikið kynfæri sín fyrir utan sólbaðsstofu í Reykjavík hvar ung stúlka var við störf. Þótti hann hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem var til þess fallið að særa blygðunarsemi hennar. 12.11.2021 16:02
Ferðamennskuaðilar verðlaunaðir á Bessastöðum Icelandic Lava Show hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2021. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda verðlaunin á afmælisdegi samtakanna, 11. nóvember ár hvert. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Icelandic Lava Show verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SAF sem sjá má í heild að neðan. 12.11.2021 15:08
Takmörkuð starfsemi á Litla-Hrauni vegna Covid-19 smits Komið hefur upp Covid-19 smit meðal starfsmanna í fangelsinu Litla-Hrauni. Nokkur hópur starfsmanna er í sóttkví og ljóst að næstu daga verður starfsemi fangelsisins takmörkuð. Öllum heimsóknum gesta er frestað fram yfir helgina. 11.11.2021 16:13
Ástand á geðdeild og hertra aðgerða krafist strax Tveir sjúklingar og fimm starfsmenn á geðdeild Landspítalans hafa greinst jákvæðir fyrir kórónuveirunni. Ein geðdeild er lokuð fyrir innlagnir og önnur í sóttkví að hluta vegna þessa. 11.11.2021 15:59
Helgi segir sig úr stjórn Ferðafélags Íslands Helgi Jóhannesson, fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá Landsvirkjun, hefur sagt sig úr stjórn Ferðafélags Íslands. Það gerði hann í morgun og var nafn hans fjarlægt af heimasíðu félagsins í framhaldinu. 11.11.2021 11:34