Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Þýfi að verðmæti tugmilljóna króna úr tveimur verslunum Elko á höfuðborgarsvæðinu er enn ófundið. Sjö voru handteknir í tengslum við málið en um er að ræða Rúmena sem hafa ekki búsetu hér á landi. 26.9.2024 11:36
Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Jón Gnarr ætlar að bjóða fram krafta sína fyrir Viðreisn í komandi Alþingiskosningum. Þetta herma heimildir Vísis. Jón hefur skráð sig í flokkinn sem heldur haustþing um helgina. 26.9.2024 10:23
Pilturinn áfram bak við lás og slá Sextán ára piltur sem grunaður er um að hafa banað sautján ára stúlku með hnífi við Skúlagötu í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 26.9.2024 09:44
Gripnir á leið upp í flugvél en tugmilljóna þýfi ófundið Þýfi að verðmæti tuga milljóna króna úr innbrotum í tvær verslanir Elko á höfuðborgarsvæðinu er ófundið. Litlu mátti muna að þeir sem grunaðir eru um innbrotin slyppu úr landi. Öryggiskerfi í annarri verslun Elko virkaði ekki vegna framkvæmda. 25.9.2024 11:58
Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Sunna frjósemi hefur fengið samþykkt starfsleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu og mun formlega opna frjósemisstofu í Evuhúsi í Urðarhvarfi á haustmánuðunum. Aðeins ein frjósemisstofa hefur verið starfandi á Íslandi síðustu áratugi en með opnun Sunnu frjósemi verða þær tvær. 24.9.2024 16:05
Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Verkstjóri á Bakkafirði hefur ýmislegt við framkomu sérsveitarmanna að athuga sem komu að handtöku pólsks karlmanns og kærustu hans í þorpinu í gær. Hann segir nokkra svarta sauði í samfélaginu gera það að verkum að fimm manna fjölskyldan ætlar að flytja úr bænum eftir fimm ára dvöl. Afskiptasemi og neikvæðni ráði ríkjum á Bakkafirði. 24.9.2024 15:31
Maðurinn fannst látinn Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða. 24.9.2024 13:13
Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir lýsir því að hafa í sumar og haust endurtekið verið kölluð api. Gelt hafi verið á hana á hinum ýmsu stöðum. Hún segir hvert atvik ýta upp hennar eigin sjálfsáliti vitandi að hún myndi aldrei leggjast jafnlágt og þeir sem hegði sér með slíkum hætti. 23.9.2024 16:11
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. 23.9.2024 15:05
Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði komnir í 8,25 prósent um mitt næsta ár, 7,5 prósent í lok árs 2025 og niður í 5,5 prósent í lok árs 2026. Þetta kemur fram nýrri þjóðhagsspá bankans. Stýrivexti eru í dag 9,25 prósent og hafa verið óbreyttir í meira en ár. 23.9.2024 14:16