Snæfríður Jónsdóttir er nýr formaður Ungra athafnakvenna Ný stjórn Ungra athafnakvenna, UAK, hefur tekið til starfa en hún var skipuð á aðalfundi félagsins 28. maí síðastliðinn. Innlent 30. júlí 2019 09:54
Einar Bárðarson ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs Eyþór Eðvarsson, stjórnarformaður Votlendissjóðs, segir endurheimt votlendis vera afar mikilvægan þátt í að minnka losun. Hann segist bera miklar væntingar til Einars og hlakkar til samstarfsins. Viðskipti innlent 28. júlí 2019 14:38
Ólöf Hildur til Advania Data Centers Ólöf Hildur Pálsdóttir hefur gengið til liðs við Advania Data Centers og tekur við framkvæmdastjórn fjármálasviðs félagsins. Viðskipti innlent 26. júlí 2019 10:01
Unnur og Rannveig sagðar verða varaseðlabankastjórar Þær eiga að leiða fjármálaeftirlit annars vegar og peningastefnu Seðlabankans hins vegar. Viðskipti innlent 25. júlí 2019 07:32
Nýr seðlabankastjóri „skarpgreindur, víðsýnn og afkastamikill“ Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands hefur, eins og greint hefur verið frá, verið skipaður Seðlabankastjóri og mun taka við af Má Guðmundssyni. Ásgeir var einn fjögurra sem metnir voru mjög vel hæfir til starfsins og þótti bera af í viðtölum ásamt Gylfa Magnússyni, dósent við HÍ. Viðskipti innlent 24. júlí 2019 17:14
Ásgeir Jónsson nýr seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, mun taka við af Má Guðmundssyni sem seðlabankastjóri. Viðskipti innlent 24. júlí 2019 16:10
Gestur ráðinn framkvæmdastjóri Veitna Stjórn Veitna ohf. hefur ráðið Gest Pétursson forstjóra Elkem Ísland sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Viðskipti innlent 23. júlí 2019 08:20
Röð tilviljana leiddi mig í starfið Sundþjálfarinn Ragnheiður Runólfsdóttir hefur ákveðið að venda kvæði sínu í kross og yfirgefa Akureyri þar sem hún hefur verið yfirþjálfari hjá sundfélaginu Óðni síðustu átta árin. Ragnheiður hefur ráðið sig sem yfirþjálfara hjá sænska liðinu SO2 sem hefur aðsetur í Gautaborg. Sport 22. júlí 2019 16:00
Ingvar frá SVÞ til Samorku Ingvar Freyr Ingvarsson tekur við starfi hagfræðings hjá Samorku í september næstkomandi. Viðskipti innlent 22. júlí 2019 10:01
Pétur Markan ráðinn samskiptastjóri Biskupsstofu Frá þessu er greint á vef Biskupsstofu en starfið var auglýst laust til umsóknar fyrr í sumar. Innlent 18. júlí 2019 10:29
Jóhannes Karl tekur við KR Búið er að finna þjálfara fyrir kvennalið KR. Íslenski boltinn 17. júlí 2019 20:01
Nýr framkvæmdastjóri útgáfufélags Fréttablaðsins sér áskoranir „Það eru margar áskoranir í rekstri fjölmiðla í dag og það verður krefjandi en ekki síður spennandi að takast á við þær sem framkvæmdastjóri félagsins,“ segir Jóhanna Helga Viðarsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins. Viðskipti innlent 17. júlí 2019 06:00
Helena hætt með ÍA ÍA, sem situr í 6. sæti Inkasso-deildar kvenna, þarf að finna sér nýjan þjálfara. Íslenski boltinn 16. júlí 2019 19:27
Skipulagsbreytingar hjá útgáfufélagi Fréttablaðsins Jóhanna Helga Viðarsdóttir verður nýr framkvæmdastjóri Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins. Viðskipti innlent 16. júlí 2019 15:30
Riaan Dreyer ráðinn framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Riaan Dreyer hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Íslandsbanka og hefur hann störf hjá bankanum í september. Viðskipti innlent 15. júlí 2019 11:20
Nýr forstöðumaður hjá Póstinum Georg Haraldsson mun taka við starfi forstöðumanns Stafrænnar þjónustu hjá Íslandspósti í lok sumars, en hann mun stýra þróun og stefnumörkun á stafrænum þjónustuleiðum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 15. júlí 2019 10:50
Ný stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga kjörin Félag viðskipta- og hagfræðinga, FVH, hefur nýlega kjörið nýja stjórn félagsins en kjörið fór fram á aðalfundi félagsins. Viðskipti innlent 15. júlí 2019 08:32
Laaksonen nýr forstjóri Samskipa í Evrópu Finninn Kari-Pekka Laaksonen hefur verið ráðinn forstjóri samsteypu Samskipa í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu Samskipa. Viðskipti innlent 12. júlí 2019 08:05
Eigandi Hlöðu ráðinn sem ráðgjafi hjá ON Orka náttúrunnar réð framkvæmdastjóra og eiganda fyrirtækis sem selur hleðslustöðvar sem ráðgjafa og tæknistjóra hleðslustöðva. Ákvörðun var tekin af ON segir framkvæmdastjórinn. Hann hafi hins vegar aðeins sinnt viðhaldi. Viðskipti innlent 11. júlí 2019 07:07
Nýr yfirmaður Medis og breytingar á yfirstjórn Jo Kim hefur verið ráðin yfirmaður lyfjasölurisans Medis, dótturfélags Actavis, en hún var áður yfir starfsemi Medis í Ástralíu. Hún flytur frá skrifstofu Medis í Sydney til höfuðstöðvanna í Hafnarfirði seinna á árinu. Viðskipti innlent 10. júlí 2019 08:00
Þórólfur enn undrandi og leggst yfir gögnin frá hæfnisnefnd Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu, undrast það hve langan tíma það hafi tekið fyrir hann að fá gögn í hendur sem hann kallaði eftir frá Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu vegna skipunar Jóns Gunnars Jónssonar í hans stað. Viðskipti innlent 9. júlí 2019 15:26
Ásgeir Helgi Reykfjörð aðstoðarbankastjóri Arion banka Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Arion banka. Viðskipti innlent 8. júlí 2019 16:26
Þór H. Ásgeirsson ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskólans Þór Heiðar Ásgeirsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 8. júlí 2019 11:30
Helgi Jóhannesson yfirlögfræðingur Landsvirkjunar Helgi Jóhannesson lögmaður hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 5. júlí 2019 10:36
Formaður félags framhaldsskólakennara ráðin skólameistari MK Að fenginni umsögn skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi hefur Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ákveðið að skipa Guðríði Arnardótur í embættið Innlent 4. júlí 2019 15:32
Auður Inga ráðin markaðsstjóri Advania Auður Inga Einarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og stafrænnar miðlunar hjá Advania. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania. Viðskipti innlent 4. júlí 2019 15:04
Gissur kvaddi hljóðnemann með kossi Gissur Sigurðsson, fréttamaður á Bylgjunni, kvaddi kollega sína á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar á Suðurlandsbraut 10 í morgun. Lífið 4. júlí 2019 12:22
Ráðning Ragnheiðar staðfest Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020. Innlent 4. júlí 2019 12:09
Ræðismaður Tyrklands á Íslandi orðinn aðstoðarhafnarstjóri Gunnar Tryggvason rafmagnsverkfræðingur hefur verið ráðinn í starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna. Hann hefur störf 1. september n.k. Alls bárust 16 umsóknir um starfið en frá þessu er greint á vef Faxaflóahafna. Viðskipti innlent 3. júlí 2019 13:58
Eydís á toppinn hjá Landmælingum Íslands eftir tuttugu ára starf Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Landmælinga Íslands til næstu fimm ára. Viðskipti innlent 2. júlí 2019 14:40