Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Fyrirtækið Sigur Rós

Sigur Rós er ekki bara hljómsveit. Sigur Rós er fyrirtæki, fyrirtæki sem veltir tugum milljóna króna á hverju ári! Erlendir aðdáendur trúa því að hljómsveitin njóti liðsinnis álfa við tónlistarsköpunina og hafa keypt meira en tvær milljónir platna.

Stöð 2
Fréttamynd

Vonin vaknar

Við fylgjum ungri konu í lyfjameðferð vegna brjóstakrabbameins. Hún og fjölskylda hennar heyja harða baráttu. Sjúkdómurinn leggur 25 konur að velli hér á landi á hverju ári. Ný lif auka lífslíkur slíkra sjúklinga.

Stöð 2
Fréttamynd

Smiðir á svörtu

Öll samfélög eiga sér "svart hagkerfi", misstórt eftir þjóðum. Á svarta markaðnum á Íslandi er í auknum mæli töluð - útlenska! Rannsókn Kompáss hefur leitt í ljós að Litháar, sem vinna hér á landi á grundvelli þjónustusamninga, eru með á bilinu 20 til 30 þúsund krónur á mánuði.

Stöð 2
Fréttamynd

Alvöru fréttaskýringaþáttur

Kompás, nýr íslenskur fréttaskýringaþáttur hefur göngu sína á sunnudag. Þátturinn verður vikulega á dagskrá á samtengdum rásum nýju fréttastöðvarinnar NFS og Stöðvar 2. Hér er um alvöru fréttaskýringaþátt að ræða þar sem vönduð og hispurslaus rannsóknarblaðamennska er höfð í hávegum.

Innlent