Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Að gleyma lífinu

Alzheimers er algengasta ástæða heilabilunar. Sjúkdómurinn herjar á um 5 prósent þeirra sem eru 67 eða eldri en þó er nokkuð um að sjúkdómurinn greinist hjá fólki á aldrinum 50-65 ára. Biðlistar inn á sérhæfðar deildir eru langir og aðstoð við aðstandendur lítil sem engin.

Stöð 2
Fréttamynd

Lífið eftir stríðið

Sprengjurnar sem skuku líbanon í sumar eru þagnaðar og fréttamennirnir farnir heim. En sárin eru enn opin og húsin hrunin þó að augu umheimsins beinist nú að öðru. Herdís Sigurgrímsdóttir fréttamaður var í Líbanon fyrir skömmu og hitti fólkið sem á um sárt að binda en lætur samt ekki bugast.

Stöð 2
Fréttamynd

Ofríkið

Það er óhætt að segja að kjarnorkusprenging Norður-Kóreumanna í síðasta mánuði hafi valdið titringi víðar en á jarðskjálftamælum í nágrenninu. Pólitísk spenna í Austur-Asíu hefur ekki verið meiri í háa herrans tíð og horfurnar eru vægast sagt óljósar. Máltækið segir að lítil þúfa velti oft þungu hlassi og það á sannarlega við í þessu tilviki.

Stöð 2
Fréttamynd

Ný úrræði

Fíkniefnaneysla kostar íslenskt samfélag allt að þrjátíu milljarða króna á ári. Heildarútgjöld ríkisins til meðferðarmála nema um einum og hálfum milljarði. Hver króna sem sett er í meðferðarúrræði er talin geta skilað sér allt að sjö sinnum til baka. Í kvöld skoðar Kompás hvernig ríkisvaldið stendur sig þegar kemur að meðferðarmálum unglinga.

Stöð 2
Fréttamynd

Orkuháskóli á Akureyri

Alþjóðlegur orkuháskóli verður stofnaður innan skamms á Akureyri. Hann verður einstakur í sinni röð og viðfangsefnið fyrst og fremst endurnýjanleg orka. Nú þegar er stofnun hans farin að vekja athygli erlendra fræðimanna. Skólinn verður sá dýrasti á Íslandi en skólaárið mun kosta um 1,7 milljónir króna.

Stöð 2
Fréttamynd

Ein á sviðinu

Þrátt fyrir að eiga að baki áralangan starfsferil sem söngkona eru fáir sem þekkja Soffíu Karlsdóttur. Hún hefur sungið með stjörnum á við Björgvin Halldórsson og tekið þátt í uppfærslum eins og Kabarett. Hún hefur alltaf verið í aukahlutverki en nú í fyrsta sinn á sínum ferli ætlar hún ekki að deila sviðinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Dýr brandari

Mun lélegur brandari kosta demókrata sigurinn í þingkosningunum í Bandaríkjunum? Þetta er raunveruleg spurning sem velt er upp eftir að John Kerry neitaði að biðjast afsökunar á klúðurslegum brandara sem mátti skilja sem árás á gáfnafar bandarískra hermanna í Írak.

Stöð 2
Fréttamynd

Fyrsta fórnarlamb You Tube?

Gjarnan er talað um repúblikanann George Allen frá Virginíu sem fyrsta YouTube fórnarlamb bandarískra stjórnmála. Fyrir ellefta ágúst var hann talinn eiga bjarta pólitíska framtíð. Allt útlit var fyrir að hann næði auðveldlega endurkjöri í öldungadeildina og alvarlega farið að ræða forsetaframboð 2008. En nú eru draumar um Hvíta húsið líkast til úr sögunni og óvíst með þingsætið, sem hafði virst svo tryggt.

Stöð 2
Fréttamynd

Aukin harka

Stóra sleggjan hefur verið dregin fram nú þegar einungis tólf dagar eru til þingkosninganna í Bandaríkjunum. Kosningabaráttan hefur fengið á sig grimmari mynd og allir sem mögulega eru taldir geta haft áhrif á útkomuna eru dregnir á flot.

Stöð 2
Fréttamynd

Sprungið kerfi

Umfjöllun okkar um dópheim íslenskra ungmenna heldur áfram; þar er einskis svifist við að ná í efnin. Unglingsstúlkur eru seldar í vændi fyrir dópið og fullyrt er að fimmtán ára strákar verði kynlífsþrælar miðaldra karlmanna. Meðferðarúrræði eru engan veginn fullnægjandi til að anna þeim fjölda mála sem koma til úrlausnar. - Og við sýnum unga tálbeitu Kompáss kaupa meira af fíkniefnum eins og ekkert sé.

Stöð 2
Fréttamynd

Mamma og mamma

Þær eru í staðfestri samvist og hefur lengi langað til að annast barn. Þegar frænka þeirra missti forræði yfir barni sínu, sóttust þær eftir að taka barnið í fóstur, en fengu neitun. Er það vegna þess að þær eru samkynhneigðar? Kompás leitar svara og ræðir við konurnar um áfallið.

Stöð 2
Fréttamynd

Fellibylur?

Fyrir sjötíu árum gerði eitt mesta fárviðri Íslandssögunnar. Í þessu veðri fórust 38 skipverjar af franska rannsóknaskipinu Pourqoui Pas? Færri vita að á þriðja tug annarra sjómanna á öðrum skipum fórst hér við land í þessum sama veðurofsa. Hvað gerðist? Hvernig var spáin? Hvernig gat orðið svo mikið fárviðri rétt að loknu sumri 1936 sem kostaði tæplega 60 manns lífið?

Stöð 2
Fréttamynd

Með fangið fullt af vandamálum

Flest bendir til að Demókratar nái meirihluta í Fulltrúadeildinni þegar kosið verður í Bandaríkjunum þann 7. nóvember næstkomandi. Þrátt fyrir ágætis gengi í efnahagsmálum og lækkandi eldsneytisverð er ekki hægt að líta framhjá margvíslegum vandræðum Bush forseta og flokks hans. Stríðið í Írak er að sjálfssögðu langerfiðasta kosningamálið fyrir Repúblikana en vandræði eru á fleiri vígstöðvum.

Stöð 2
Fréttamynd

Díler á hverju horni

Eitt símtal og þú færð dópið eftir 20 mínútur. Þetta leiðir rannsókn Kompás s í ljós á aðgengi unglinga að fíkniefnum í Reykjavík. Unglingsstúlkur, allt niður í fjórtán ára selja líkama sinn eldri karlmönnum til að fá dóp. Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík segist sjá aukningu í neyslu unglinga á fíkniefnum.

Stöð 2
Fréttamynd

Gefst aldrei upp

Framfarir á sviði læknavísinda hafa verið gríðarlega miklar á undanförnum árum. Blindir hafa öðlast sjón og heyrnardaprir heyrn. Þó er enn litið svo á að lömun sé varanlegt ástand. Litlu fjármagni hefur verið eytt í rannsóknir á mænuskaða og framfarir á því sviði verið litlar. Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur vill breyta þessu. Hún neitar að gefast upp í baráttu sinni fyrir því að lamaðir geti hreyft sig á ný.

Stöð 2
Fréttamynd

Inn úr kuldanum

Mikhail Sergeyevits Gorbatsjov var á Íslandi í vikunni í tilefni af því að tveir áratugir eru síðan hinn dramatíski leiðtogafundur hans og Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta var haldinn í Reykjavík. Þessi maður hafði fingurinn á hnappanum, gat eytt lífi á jörðunni, meðan hann var forseti Sovétríkjanna. Við skulum kynnast þessum 75 ára gamla manni, sem leyfði Berlínarmúrnum að falla, samdi um stórfækkun kjarnorkuvopna og batt enda á kalda stríðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Örkin hans Ómars

Við áttum þess kost að fylgjast með Ómari nokkra dagsparta nú á haustdögum, einmitt þegar Hálslón var að dýpka hvað hraðast. En hvað er Ómar að gera þarna? Eru einhverjir að hjálpa honum? Hefur hann efni á þessu? En við skulum byrja á því að bregða okkur tíu daga aftur í tímann.

Stöð 2
Fréttamynd

Drukknandi dalur

Við ætlum nú að sigla með Ómari um Hálslón, Heyra skoðanir hans á þeim sem ábyrgðina bera. Upplifa það þegar hann sér og lýsir náttúrugersemum sem eru endanlega að tapast. Og svo eru kannski einhverjir sem spyrja hvort það sé Ómar sem er búinn að tapa sér.

Stöð 2
Fréttamynd

Bardagar framundan

En hvað tekur nú við hjá Ómari? Vetur fer að leggjast yfir Kárahnjúka og hann á að mæta til vinnu hjá Ríkissjónvarpinu þann 15. október, eftir langt frí, og fer þá í þáttagerð. Verður reynt að þagga niður í honum? Í hvaða átakamál ætlar hann að blanda sér í?

Stöð 2
Fréttamynd

Aukin friðargæsla

Balkanskaginn kemur til greina fyrir ný verkefni íslensku friðargæslunnar, en utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að stórauka eigi þátt Íslands í verkefnum á sviði friðargæslu og þróunarsamvinnu. Verkefni í fjölmörgum löndum eru til skoðunar og íslenskir starfsmenn friðargæslunnar eru eftirsóttir til starfa víða um heim.

Stöð 2
Fréttamynd

Pétur í Laufási

Í eiginlegri merkingu var fótunum kippt harkalega undan Pétri Þórarinssyni presti í Laufási í Eyjafirði fyrir nokkrum árum. Hann hefur þjáðst af sykursýki á háu stigi og er bundinn við hjólastól eftir að hafa misst báða fætur með skömmu millibili. Í samantekt Björns Þorlákssonar heyrum við nú prestinn lýsa þróun sjúkdómsins, deginum dökka þegar hann ákvað að svipta sig lífi og styrknum sem hann fékk til að vinna sig út úr mótlætinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Fótbolti í forarsvaði

Evrópumeistaramótið í mýrabolta var haldið á Ísafirði í þriðja sinn í sumar. Mótið hefur fest sig í sessi sem einn drullugasti viðburður landsins þótt víða væri leitað og keppendum fjölgar ár frá ári. Í upprunalandinu Finnlandi er mýrarboltinn orðinn að einum stærsta sumarviðburði landsins sem sýnir svo ekki verður um villst að undarlegustu mannamót geta orðið að stórmótum, sé rétt að málum staðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Stríð í paradís

Í fjarlægu landi við suðurodda Indlands er paradísareyjan Sri Lanka, rómuð fyrir fegurð og menningarlega fjölbreytni. En þar geysar ófriður þrátt fyrir vopnahléssamninginn frá árinu 2002. Íslendingar og Norðmenn fylgjast með því hvort samningurinn sé virtur og leita upplýsinga um morð og glæpi sem stríðandi fylkinginar fremja. Þeir leita upplýsinga um morðin, fara á vettvang í spítalana og líkhúsin.

Stöð 2
Fréttamynd

Blóðugur veruleiki

Yfirmaður vopnaeftirlitsins í Trincomalee er íslenskur. Hann heitir Sigurður. Á hverjum degi fer hann ásamt liðsmönnum sínum á glæpavettvang og reynir að grafast fyrir hvort Tamiltígrar eða stjórnarherinn beri ábyrgðina.

Stöð 2
Fréttamynd

Stuðlað að friði

Kompás, einn vestræna fjölmiðla, fékk að fara í höfuðvígi Tamiltígranna í norðri borgarinnar Kilinonchi. Stjórnarherinn hefur lokað þjóðveginum til borgarinnar og eru því bæði lyf og eldsneyti af skornum skammti. Sprengjum hefur verið látið rigna yfir Tamila í norðri alla leiðina að bænum Mulativo sem fór illa í flóðbylgjunni 2004.

Stöð 2
Fréttamynd

Glæpir og refsing ungmenna

Ellefu ára barn tekið með fíkniefni og sextán ára drengur fer á Internetið gagngert til þess að finna mann til að drepa. Blákaldur íslenskur raunveruleiki og þjóðin er slegin óhug. Sérfræðingar eru sammála um að það verði að bregðast við, en jafnframt að sérstök unglingafangelsi séu ekki rétta lausnin. Á næstu mánuðum verður í fyrsta skipti á Íslandi prófað að leiða saman unga glæpamenn og þolendur, í því augnamiði að fá afbrotaunglinga til að skilja afleiðingar gerða sinna.

Stöð 2
Fréttamynd

Vot gröf Engisprettunnar

Eitt sinn mesta umhverfisslys Íslands en nú aðdráttarafl fyrir ferðamenn. El Grillo, eða Engissprettan, hefur legið á botni Seyðisfjarðar frá því á stríðsárunum að þýsk sprengiflugvél grandaði skipinu fullu af olíu. Fyrir um 6 árum var farið út í kostnaðarsamar aðgerðir við að ná olíu úr skipinu sem þegar á reyndi var mun minni en áætlað var. Nú vilja sportkafarar útbúa svæðið við vota gröf engissprettunnar fyrir kafara sem þeir segja að gætu skipt miklu fyrir ferðamannaiðnaðinn á Seyðisfirði.

Stöð 2
Fréttamynd

Lay Low

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir eða Lay Low er ung tónlistarkona sem íslenska útgáfufyrirtækið Cod Music uppgötvaði fyrir stuttu og heillaðist svo af henni að henni var boðinn plötusamningur þegar í stað. Lovísa er hlédræg og einlæg og er undrandi á móttökunum sem hún hefur hlotið, áður en búið er að gefa út fyrstu plötuna hennar. Cod Music útgáfan er ný á markaðnum og hefur farið ótroðnar slóðir.

Stöð 2
Fréttamynd

Klippt og skorið

Lýtalækningar eru eitt, fegrunaraðgerðir annað. Við spyrjum hvort þeim hafi fjölgað mikið á síðustu árum, hvernig eftirliti með þeim sé háttað og hver sé kostnaðurinn. Eiga þeir sem sækjast eftir fegrunaraðgerð kost að fá þær á viðunnandi verði? Kompás skoðaði málið.

Stöð 2
Fréttamynd

Lögreglukórinn í Rússlandi

Við förum með Lögreglukór Reykjavíkur í kórferðalag til Rússlands og Eistlands. Kórinn vakti verðskuldaða athygli með söng sínum. Menn lögreglunnar sungu í hátíðarbúningi í sölum og á torgum.

Stöð 2