Bjarni gefur sjálfum sér 8,5 í einkunn fyrir jólagjafakaup fyrir frúna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra segir margar góðar hugmyndir geta vaknað þegar hann fer í bað snemma á morgnana. Og sendir þá tölvupósta og skilaboð út um allar trissur eða hlustar á hlaðvarpsþátt. Bjarni vaknar snemma, sofnar snemma og segist standa sig vel í að velja jólagjafir fyrir frúna. Atvinnulíf 24. desember 2022 10:01
Leðurbuxur, hringur í nef og nafla og permanent en toppnum náð á fermingadaginn Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir myndlistarkona og kennari viðurkennir að hafa farið alla leið í tískunni sem unglingur. Permanent tólf ára, hringur í nefið og rakaði af sér hárið einhverjum árum síðar. Í unglingatískunni segist hún samt hafa toppað sjálfan sig á fermingardaginn. Atvinnulíf 17. desember 2022 10:01
Z kynslóðin er allt öðruvísi en eldri kynslóðir og mun breyta öllu „Við þurfum alltaf að taka samtalið. Við þurfum alltaf að passa að vera í samráði við unga fólkið því að þau munu breyta öllu. Z kynslóðin, sem nú er 10 til 27 ára, er kynslóð sem er allt öðruvísi en kynslóðin sem er ríkjandi stjórnendahópur í dag,“ segir Anna Steinsen einn eigandi KVAN. Atvinnulíf 15. desember 2022 07:01
Fjórar kynslóðir á sömu vinnustöðum: Mikilvægt að þjálfa næstu kynslóð leiðtoga „Eitt af því sem stendur upp úr í íslensku atvinnulífi í augnablikinu er að í fyrsta skipti erum við með fjórar ólíkar kynslóðir að vinna saman. Þetta eru þá kynslóðirnar sem eru Z kynslóðin, aldamótakynslóðin, X kynslóðin og sú sem er að jafnaði kölluð Baby boomers kynslóðin,“ segir Guðrún Högnadóttir framkvæmdastjóri Franklin Covey. Atvinnulíf 14. desember 2022 07:01
Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ „Mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi búa í Danmörku. En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann. Því nú er ég hér og hefur aldrei liðið betur. Það sem maður vill fyrir alla er að öllum líði vel,“ segir Richard Scobie, sem ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur Scobie rekur fyrirtækið Nordic Trailblazers á eyjunni Mön í Danmörku. Atvinnulíf 13. desember 2022 07:26
Eins og hauslaus hæna í matvörubúð og ekki eldað síðan 2009 Það mátti litlu muna að Guðfinnur Sigurvinsson létist úr næringaskorti í október síðastliðnum. Því þá var hann einn heima í mánuð og svo lélegur er hann í eldamennskuna að málin stóðu tæpt þegar eiginmaðurinn kom loks heim fjarveru vegna vinnu. Guðfinnur er rakari á Rakarastofunni Herramönnum í Kópavogi og bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ásamt fleiru. Atvinnulíf 10. desember 2022 10:00
Að peppa upp dauðþreytt starfsfólk í desember Á mörgum stöðum er desember stærsti sölumánuðurinn. Mesti álagstími ársins fyrir starfsfólk. Sem þó, til viðbótar við að vinna mikið, er líka að undirbúa sín jól. Með tilheyrandi stússi. Atvinnulíf 9. desember 2022 07:00
Mikilvægt að tryggja að í upplýsingagjöf fyrirtækja séu engar hálfsagðar sögur „Grænþvottur á sér stað þegar fyrirtæki setur fram rangar eða villandi upplýsingar um það sem þau eru að gera í umhverfismálum. Þetta er ekkert alltaf gert viljandi. En það sem gerist þegar fyrirtæki eru uppvís að grænþvotti er að það getur skemmt út frá sér og dregið úr tiltrú fólks á umhverfismálin,“ segir Birgitta Steingrímsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Atvinnulíf 8. desember 2022 08:44
„Við eigum að fara að hegða okkur meira eins og ömmur okkar og afar“ „Íslendingar hafa margt oft sýnt og sannað hversu öflug og fljót við erum að aðlaga okkur breytingum. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og tel því að allir eigi eftir að taka vel í þessar breytingar, fólki hér er annt um náttúruna og við viljum flest vera sjálfbær,“ segir Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri Hringrásarhagkerfisins hjá SORPU. Atvinnulíf 7. desember 2022 07:01
„Það er alltaf ástin sem leiðir mig hvert ég fer“ „Það er alltaf ástin sem leiðir mig hvert ég fer. Þannig hefur það alltaf verið,“ segir Brynja Tomer og hlær. Fædd í Danmörku, alin upp á Íslandi, búsett á Spáni, á Ítalíu, á Íslandi en nú Kólumbíu. Atvinnulíf 5. desember 2022 07:01
Fyrsta verk dagsins að þagga niður nöldurvælið í frú Sigríði Jósafínu Brynhildur Ólafsdóttir útiþjálfari og leiðsögumaður segist markvisst vera að temja sér meira kæruleysi. Enda sé það skemmtilegra, afslappaðra og heilbrigðara fyrir taugakerfið. Brynhildur byrjar daginn á að sinna kettinum frú Sigríði Jósefínu sem hefur enga þolinmæði gagnvart eiganda sem fer seint á fætur. Atvinnulíf 3. desember 2022 10:01
Hversu vel eiga þessi atriði við um yfirmanninn þinn? Það er talað um að tilfinningagreind sé eitt af því sem mun gera starfsfólk eftirsóttara til framtíðar, enda ekki nema von því í allri þeirri tæknibyltingu sem nú er, vitum við þó að eitt mun tæknin seint ráða við: Að skilja hvernig tilfinningaflóran okkar er eða líðan. Atvinnulíf 2. desember 2022 07:00
Vinnustaður í kjölfar uppsagna Eins og eðlilegt er, eru fyrstu viðbrögðin okkar þegar uppsagnir eru á vinnustað að hugsa um það samstarfsfólk okkar sem var rétt í þessu að missa vinnuna. Við upplifum samkenndina og umhyggjuna. Vonum það besta fyrir viðkomandi í atvinnuleitinni framundan. Þegar ein dyr lokast opnast aðrar ekki satt? Atvinnulíf 1. desember 2022 07:00
Í gamni og alvöru: „Hvað í andskotanum erum við búin að koma okkur út í?“ „Það er frekar fyndið hversu mikið það er alltaf lagt upp úr góðri hugmynd. Stóra málið er hins vegar að framkvæma. Því hvað er geggjuð hugmynd ef það verður ekki neitt úr neinu?“ spyrja hjónin Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir stofnendur Lava Show. Atvinnulíf 29. nóvember 2022 07:01
Fréttasjúklingur sem hefur borðað hundahamborgara, hestaheila, lifandi orma og drukkið snákablóð Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og fyrrverandi forseti Heimssamtaka Matreiðslumanna, Klúbbs matreiðslumanna og Kokkablúbbs Norðurlanda, segist í dag fyrst og fremst vera ævintýramaður. Og húsmóðir í Frakklandi. Sem þó er að setja á laggirnar fyrsta kokkalandsliðið í Indlandi. Atvinnulíf 26. nóvember 2022 10:00
Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður. Atvinnulíf 25. nóvember 2022 07:01
Kostir og gallar: Erum orðin svo vön því að gera margt í einu Rétt upp hönd sem multitaskar aldrei? Enginn? Nei, ekkert skrýtið því flestum okkar er orðið svo tamt að gera margt í einu að við varla tökum eftir því. Að multitaska í vinnunni hefur sína kosti og galla. Atvinnulíf 24. nóvember 2022 07:01
Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“ „Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á. Atvinnulíf 22. nóvember 2022 07:00
„Það er galið að segja það en ég gæti mögulega drepist úr áhuga“ Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, viðurkennir að hún gæti verið röskari í að koma sér fram úr á morgnana. Andrea er í átaki að fara fyrr upp í rúm á kvöldin en einnig að hætta að segja að það sé „brjálað“ að gera en segja þess í stað að það sé „nóg“ að gera. Atvinnulíf 19. nóvember 2022 10:00
Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Atvinnulíf 18. nóvember 2022 07:01
Oft snúast kaup á vöru frekar um öryggistilfinningu en lægsta verðið „Mikilvægasta hlutverk vörumerkis er að fólk taki eftir því og muni eftir því. Það þýðir að vinnan við að byggja upp vörumerki þarf að vera löngu hafin áður en hin árlega auglýsingasturlun hefst í kringum jólin og allt það áreiti sem því fylgir,“ segir Kári Sævarsson, stofnandi TVIST auglýsingastofu um þær áherslur sem þurfa að vera hjá söluaðilum sem nú eru í óða önn að setja sig í stellingar til að selja sem mest fyrir jólin. Atvinnulíf 16. nóvember 2022 07:01
Þrennt sem virkar vel að bjóða starfsfólki annað en launahækkun Peningar eru ekki allt og peningar kaupa ekki hamingju. Sem auðvitað þýðir að í vinnunni okkar er svo margt annað sem getur talist til annað en launin sem við fáum greidd fyrir vinnuna. Atvinnulíf 14. nóvember 2022 07:00
Hvetur fólk til að nota arf barnanna og nýta peningana sína snemma „Notaðu arf barna þinna er meira að segja yfirskrift ferðaskrifstofu í Danmörku sem sérhæfir sig í ferðum fyrir fólk á þriðja æviskeiði. Sem ég er sammála um að fólk geri og hvet fólk til að nýta peninga sína snemma og á meðan það hefur heilsu til,“ segir Tryggvi Pálsson og bætir við: Atvinnulíf 13. nóvember 2022 08:01
Væri líklegast uppátækjasamur starfsmaður á plani í Næturvaktinni Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, er í því átaki núna að lesa meira á kvöldin en leggja símann frá sér. Ef hún væri karakter í Næturvaktinni telur hún líklegt að hún væri uppátækjasamur starfsmaður á plani. Atvinnulíf 12. nóvember 2022 10:01
Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. Atvinnulíf 10. nóvember 2022 07:01
Móbergið mögulega jákvæð lausn fyrir heiminn en ekki íslenska bókhaldið Það kemur kannski á óvart að heyra hversu mikil rannsóknar- og nýsköpunarstarf fer fram hjá BM Vallá. Fyrirtækið vinnur að nokkrum nýsköpunarverkefnum þessi misserin, þar sem hver steypuuppskriftin á fætur annarrar er blönduð, prófuð, rannsökuð og mæld. Atvinnulíf 9. nóvember 2022 07:00
Sjálfbærni: Tökum stökk í upplýsingagjöf en erum langt á eftir í öðru Niðurstöður viðamikillar úttektar KMPG á heimsvísu um sjálfbærni fyrirtækja sýnir að íslensk fyrirtæki hafa tekið risastórt stökk í upplýsingagjöf um sjálfbærni. Atvinnulíf 7. nóvember 2022 07:00
75 ára í IKEA: Trúði því alltaf að hún væri kraftaverkabarn „Nei ég var ekkert að hugsa um að hætta þegar að ég varð sjötug. Við fórum til Los Angeles og vorum þar, ég og börnin, í heimsókn hjá dóttur minni sem er búsett þar. Ég fékk líka 70 rósir í gjöf frá IKEA,“ segir Guðrún Hlín Þórarinsdóttir sem nú er 75 ára og enn í 100% starfi hjá IKEA. Atvinnulíf 6. nóvember 2022 08:01
Tekur úr uppþvottavélinni og eldar en er meinaður aðgangur að þvottahúsinu Ólafur Jóhann Ólafsson segir mestan sinn tíma fara í skriftir. Heima fyrir er hann ágætlega duglegur; eldar, er góður í að raða í hillur og skúffur og hita kaffi, en jafn vonlaus í að raða í uppþvottavélina eða þvo þvott. Atvinnulíf 5. nóvember 2022 10:00
Að segja sannleikann: „Við vælum pínu mikið í lúxuslandi“ „En fyrst við erum að tala um þriðja æviskeiðið er kannski líka tilefni til að nefna að það er ekkert endilega eldra fólkið sem kemur verra út í mælingum. Því við fáum stundum til okkar fjölskyldur og þá er það oftar en ekki foreldrarnir sem eru að koma betur út í lífgildum en ungmennin,“ segir Lukka Pálsdóttir hjá Greenfit og vísar þar til heilsu fólks sem er 25 ára og yngra. Atvinnulíf 3. nóvember 2022 07:00