Hópur lögreglu stöðvar ofsaakstur ökumanns á Hoppbíl
Myndskeið sýnir hvernig fjöldi lögreglumanna stöðvaði og yfirbugaði ökumann deilibíls Hopp í Reykjavík í dag. Sá hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og er sagður hafa ekið utan í minnst fjórar bifreiðar á leið sinni frá Lágmúla að Víðidal. Þar af voru tveir lögreglubílar.