Party Zone listinn fyrir ágúst
Í þætti vikunnar er kynntur Party Zone listinn, top 30 fyrir ágúst mánuð. Allt það heitasta sem er búið að vera að gerast í danstónlistinni undanfarnar vikur að mati þáttarstjórnenda og helstu plötusnúða þáttarins í rúmlega tveggja tíma þætti. Listinn er drekkhlaðinn af úrvals tónum erlendum og íslenskum úr ýmsum áttum. Listann sjálfan má sjá á Facebook síðu þáttarins, facebook.com/partyzone.is. Hlustið og njótið!
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    