First Try Fail Mondays - Óli og Hjálmar frá Neskaupsstað
First Try Fail Mondays eru hjólabrettaþættir úr smiðju plötusnúðsins Adda Intro. Addi tekur hús á fremstu hjólabrettamönnum landsins og leggur fyrir þá þrautir sem þeir verða að klára. Að þessu sinni eru það félagarnir Óli S. Konráðsson og Hjálmar Joensen frá Neskaupsstað sem spreyta sig.
Þáttur Óla og Hjálmars er hluti af annarri þáttaröð First Try Fail Mondays en sú fyrsta, sem telur um 40 þætti, er nú komin út á DVD.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    