Fótbolti

Hjart­næm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef ein­hver segir að þú getir þetta ekki“

Sindri Sverrisson skrifar
Alexia Putellas hefur nú hlotið Gullboltann þrisvar sinnum á sínum stórkostlega ferli.
Alexia Putellas hefur nú hlotið Gullboltann þrisvar sinnum á sínum stórkostlega ferli. Getty/Jeff Spicer

Besta fótboltakona heims, hin spænska Alexia Putellas, hlaut mikil viðbrögð við einlægri þakkarræðu sinni eftir að hún hlaut Gullboltann í þriðja sinn á ferlinum á glæsilegu verðlaunahófi í London í gærkvöld.

Putellas hafði áður hlotið Gullboltann árin 2021 og 2022 og á þeim tíma virtist hún nánast ósnertanleg, á hátindi ferilsins. Það var því vægast sagt áfall þegar hún sleit krossband í hné skömmu fyrir EM sumarið 2022. 

Það tók hana ár að komast aftur af stað en bakslag kom í meiðslin og um tíma var ekkert útlit fyrir að Putellas yrði aftur sú besta í heimi. Á þeim tíma sótti hún styrk til sinna nánustu og í gærkvöld, eftir að hafa þakkað liðsfélögum sínum, þjálfurum og fleirum, talaði Putellas sérstaklega til fjölskyldunnar sinnar.

„Mig langar að ljúka þessu á því sem skiptir mestu máli. Þessi bikar er viðurkenning fyrir mína vinnu en ég verð að þakka móður minni, fjölskyldu minni, vinum mínum og öllu stuðningsneti mínu utan vallar. Ef ég gat notið þess að spila aftur á síðasta tímabili eins og ég gerði, þá er það alfarið ykkur að þakka. 

Ég man eftir þeim stundum þegar fóturinn gaf sig, þegar ég þurfti að læra að ganga aftur, hlaupa aftur og skjóta aftur. Þegar efasemdirnar voru sem mestar voruð þið alltaf til staðar og hjálpuðuð mér í gegnum þetta. Ég elska ykkur öll innilega,“ sagði Putellas í sigurræðunni sem sjá má á Youtube.

Fyrr í ræðunni hafði hún hrósað sínum gömlu liðsfélögum í Evrópumeistaraliði Barcelona sérstaklega og sagt að hver þeirra væri verðugur handhafi Gullboltans. Putellas, sem í sumar gekk svo til liðs við London City Lionesses sagði svo:

„Það hefur verið svo ánægjulegt að spila við hlið hverrar og einnar ykkar. Við höfum átt ótrúlegar stundir saman sem lið.

Við sigruðumst á ýmsum erfiðleikum, meiðslum og augnablikum sem við áttum ekki von á sem lið og ég er afar stolt sem fyrirliði.“

Skiptir ekki máli hvort þú ert strákur eða stelpa og hvaðan þú kemur

Putellas var líka með skýr skilaboð til ungra krakka um allan heim um að láta ekki efasemdir annarra stöðva sig.

„Til allra stráka og stelpna um allan heim – ef þið elskið fótbolta og ef þið viljið spila fótbolta, spilið þá fótbolta. Það skiptir engu máli hvort þú ert strákur eða stelpa, það skiptir engu máli hvaðan þú kemur. Ekki hlusta ef einhver segir við þig: „Þú getur þetta ekki.“ Hafðu trú á þér.

Það mikilvægasta er að ef þú átt þér draum þá skaltu elta hann. Jafnvel þó að þú þurfir einhvern tímann að byrja aftur alveg frá grunni. Og það mikilvægasta er að þú gerir þetta af ást og ástríðu,“ sagði Putellas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×