Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Valur Páll Eiríksson skrifar 27. október 2026 08:31 Archie Brown í Fenerbahce tekst á við Abdulkerim Bardakci úr Galatasaray í gær. Upp úr sauð eftir leik liðanna. Getty Upp úr sauð eftir leik erkifjendanna Galatasaray og Fenerbahce í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Galatasaray fór á topp deildarinnar með 2-1 sigri.
Tvö mörk Nígeríumannsins Victor Osimhen dugði Galatasaray fyrir 2-1 sigri og liðið er eftir hann með 22 stig á toppi deildarinnar en Fenerbahce situr eftir í fimmta sæti með 16 stig eftir níu leiki. Leikurinn leystist hins vegar upp í ringulreið og fjöldaslagsmál í leikslok í Istanbúl í gærkvöld. Starfsmenn neyddust til að hlaupa inn á völlinn þegar leikmenn Fener fengu útrás fyrir reiði sinni eftir 2-1 tap í slag erkifjendanna. Myndskeið af Abdulkerim Bardakci, fyrirliða Gala, að draga leikmenn sína í burtu hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla eftir að Kerem Akturkoglu, leikmaður Fenerbahce, lenti í átökum í leikslok. Merak edenler için işte o kavga #galatasaray #fenerbahçe #derbi https://t.co/J7yjG2t8Ga— koray yuruk (@KorayYuruk) October 26, 2026 Akturkoglu var umsvifalaust haldið aftur á meðan aðrar ryskingar brutust út á milli miðjumannsins Matteo Guendouzi og starfsmanns Galatasaray. Þetta dró að sér fjölda leikmanna og jafnvel öryggisverði leikvangsins, og í þriðju átökunum sást Englendingurinn Archie Brown taka Bardakci hálstaki áður en hann var dreginn í jörðina. Gengið hefur á ýmsu hjá Fenerbahce á leiktíðinni. Upp úr sauð eftir leik liðsins við Lyon í forkeppni Meistaradeildarinnar þar sem bæði Mason Greenwood og Matteo Guendouzi voru dæmdir í bann fyrir bendingar sínar í átt til stuðningsmanna Lyon. Þeir voru áður leikmenn Marseille, erkifjenda Lyon. Þá sagði Ismail Kartal, þjálfari liðsins, upp störfum eftir 1-1 jafntefli við Roma í fyrstu umferð deildarkeppninnar í Meistaradeildinni. Forseti félagsins hafnaði uppsögninni og Kartal enn að störfum hjá félaginu.
Tyrkneski boltinn Tyrkland Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Sjá meira