Innlent

Jólageitin risin

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Mynd frá athöfninni árið 2022.
Mynd frá athöfninni árið 2022. Vísir/Vilhelm

Jólageitin er komin á sinn stað fyrir utan verslun Ikea í Kauptúni í Garðabæ. Hún hefur mátt þola ýmislegt í gegnum árin en hefur fengið að standa svo til óáreitt undanfarin ár.

Guðný Camilla Aradóttir markaðsstjóri Ikea segir starfsfólki þykja vænt um geitina sem eigi huggulega jólastund þegar geitin er reist.

Það hefur ekki mörgum dulist að geitin hefur verið skotmark skemmdarvarga í gegnum árin. Síðast brann hún árið 2016 en hefur einnig orðið veðrinu að bráð.

„Hún hefur fengið að standa undanfarin ár og við vonum að hún fái það áfram. Það hefur verið alls konar sem hún hefur gengið í gegnum,“ segir Guðný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×