Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. október 2026 16:37 Halla Gunnarsdóttir lagði leið sína í Árneshrepp til að drena hús. Vísir/Bjarni Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gengst við slúðurpistli um að hún hafi keypt þungunarpróf. Hún var sjálf ólétt en festi kaup á prófinu til að stríða íbúum Árneshrepps. „
Mannlíf hefur svipt hulunni af gríðarlegu leyndarmáli í mínu lífi, það er þegar ég keypti þungunarpróf í Kaupfélaginu í Norðurfirði á Ströndum,“ skrifar Halla í færslu á Facebook. Í morgun birtist nafnlaus pistill undir slúðurdálki Mannlífs með fyrirsögninni „Þungunarpróf Höllu“. Þar er reifuð saga um að eitt sinn hafi Halla fest kaup á þungunarprófi í umræddu kaupfélagi til að villa fyrir íbúum sem gerðu ráð fyrir því að íbúi á svæðinu væri barnshafandi. Halla gengst við þessari sögu en segir hinn raunverulega þolanda vera Reyni Traustason, sem þá var skálavörður í skála Ferðafélags Íslands. Hann hafi gengið í verslunina hvern dag og talið þungunarprófin til að athuga hvort eitthvað þeirra hefði selst. „Þorpið þurfti sárlega á börnum að halda til að leggjast ekki af og kaupfélag eins og þetta pantar ekkert þungunarpróf nema einhver óski sérstaklega eftir því. Kaupfélagsstjórinn gaf ekkert uppi, hún hélt trúnað við sitt samfélag eins og góðum embættismönnum sæmir,“ skrifar Halla. Halla var stödd hjá vinkonu sinni sem búsett var í Reykjafirði til að drena húsið hennar. Hún hafi ekki getað setið á sér, skrapp í kaupfélagið og spurði hvort þar væri hægt að fá óléttupróf. Á þessum tíma var hún gengin fjóra mánuði og segir að það hafi sést á henni. Í pistli Mannlífs segir að vart annað hafi verið rætt í hreppnum og fóru vonir vaxandi um að ein af þremur konunum á barneignaaldri væri ólétt. „En háólétt Halla hló alla leið til Reykjavíkur með þungunarpróf í farangrinum,“ segir í pistlinum. Halla tekur fram að eftir allt saman hafi enginn pantað þungunarprófin heldur fór kaupfélagsstjórinn línuvillt og hafði ætlað sér að panta þorskhnakka. „Árneshreppi óska ég alls hins besta og vona að þangað rati sem flest þungunarpróf sem reynist jákvæð,“ skrifar Halla í lok færslunnar.
Árneshreppur Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira