Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 25. október 2026 19:00 Eva Pandora er kynfræðingur með meistaragráðu í kynsálfræði og kynlífsráðgjöf (e. MSc Sexual Psychology and Sexual Therapy) frá London Metropolitan University. Lesendur geta sent spurningu til hennar í forminu hér fyrir neðan. Canva/Vísir Spurning frá 30 ára konu: „Ef maki manns heldur fram hjá eða svíkur með sambærilegum hætti með manneskju sem ekki er hægt að slíta á öll tengsl við sökum vinnu, hver er hættan á því að svikni makinn endurheimti aldrei traustið í sambandinu? Þarf að rjúfa öll tengsl til að samband eigi möguleika á því að lifa af eftir framhjáhald eða svik af sambærilegum toga?“
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess að sambandið geti lifað af. Það getur hins vegar gert það töluvert erfiðara að endurbyggja traustið ef viðkomandi er enn hluti af daglegu lífi makans. Þegar maki heldur fram hjá er það ekki bara framhjáhaldið sjálft sem særir, heldur líka það að manneskjan sem þú treystir hefur brotið það traust. Allt í einu geta hlutir sem áður þóttu sjálfsagðir farið að vekja óöryggi. Skilaboð í símanum, yfirvinna eða vinnuferðir geta orðið uppspretta kvíða og ef manneskjan sem makinn hélt fram hjá með er enn á sama vinnustað er mjög skiljanlegt að það veki erfiðar tilfinningar. Það er líka mikilvægt að átta sig á því að traust kemur ekki sjálfkrafa aftur þótt framhjáhaldinu sé lokið og makinn hafi beðist afsökunar. Það tekur tíma að jafna sig á svikum og stundum getur tekið langan tíma að finna aftur fyrir því öryggi sem áður var til staðar. Þarf að slíta öllum samskiptum? Í ráðgjöf eftir framhjáhald er almennt mælt með því að slíta samskiptum við þriðja aðilann, enda getur það hjálpað til við að skapa öryggi og draga úr óvissu. Það er þó ekki alltaf raunhæft, sérstaklega þegar fólk vinnur saman. Það er hins vegar mikill munur á því að þurfa að eiga vinnutengd samskipti við einhvern og því að halda áfram persónulegum samskiptum. Þótt ekki sé hægt að koma alfarið í veg fyrir samskipti er yfirleitt hægt að setja þeim skýr mörk. Í Gottman-aðferðinni sem ég nota í minni ráðgjöf er lögð áhersla á að sá sem hélt fram hjá taki ábyrgð á svikunum og sýni með hegðun sinni yfir tíma að hægt sé að treysta honum aftur. Það er ekki nóg að segja „þú verður bara að treysta mér“ þegar traustið hefur verið brotið. Það þarf að gefa makanum raunverulegar ástæður með hegðun sinni til að makinn geti byrjað að finna öryggið á ný. Hvað getið þið gert? Ég myndi ráðleggja ykkur að byrja á því að ræða hvaða samskipti við þriðja aðilann eru nauðsynleg vegna vinnu og setja skýr mörk um þau. Til dæmis gætuð þið komið ykkur saman um að samskiptin séu eingöngu vinnutengd, að engin persónuleg skilaboð fari á milli og að makinn láti þig vita ef þau þurfa að vinna náið saman. Það er líka mikilvægt að þú getir sagt frá því hvað veldur þér óöryggi og hvað þú þarft til að líða betur. Ég myndi hvetja ykkur til að taka reglulega stöðuna, ræða hvað hefur gengið vel og hvort eitthvað þurfi að breytast. Markmiðið er þó ekki að þú þurfir að fylgjast með hverju einasta skrefi makans. Slíkt eftirlit skapar sjaldnast varanlegt öryggi. Það sem skiptir meira máli er að makinn sýni sjálfur frumkvæði að hreinskilni og virði þau mörk sem þið hafið komið ykkur saman um. En hvað ef traustið kemur aldrei aftur? Þú spyrð hverjar líkurnar séu á því og því er því miður ekki hægt að svara með ákveðinni prósentu. Sum pör ná að vinna sig í gegnum framhjáhald og byggja upp gott samband á ný en önnur ekki. Það sem skiptir miklu máli er hvernig makinn bregst við. Tekur hann ábyrgð á því sem gerðist? Sýnir hann tilfinningum þínum skilning? Er hann tilbúinn að gera breytingar eða finnst honum þú einfaldlega eiga að vera komin yfir þetta? Mér finnst líka mikilvægt að minna á að fyrirgefning og traust eru ekki það sama. Þú getur fyrirgefið einhverjum án þess að vera tilbúin að treysta honum aftur. Þú getur líka elskað maka þinn og viljað halda áfram í sambandinu en samt verið óviss um hvort þú getir nokkurn tímann fundið fyrir sama öryggi og áður. Það er ekkert óeðlilegt við það. Ef þið viljið bæði halda sambandinu áfram en eigið erfitt með að finna leiðina getur sambandsráðgjöf verið góður vettvangur til að vinna úr svikunum og finna út hvað þarf til að þið getið haldið áfram. Það er líka vert að nefna að sum pör sem fara í sambandsráðgjöf og vinna markvisst í sambandinu eftir framhjáhald upplifa jafnvel að þau komi sterkari út úr því. Ekki vegna þess að framhjáhaldið hafi verið sambandinu hollt, heldur vegna þess að það verður stundum til þess að fólk fer loksins að ræða hluti sem hafa setið á hakanum lengi. Samskipti, þarfir, væntingar, nánd og ýmislegt annað sem við eigum það til að vanrækja í amstri dagsins. Í raun er þetta vinna sem flest sambönd hefðu gott af, hvort sem framhjáhald hefur átt sér stað eða ekki. Gefðu þér þann tíma sem þú þarft og mundu að þú þarft ekki að bera ábyrgð á því ein að koma sambandinu aftur á réttan kjöl. Það þarf tvo til að byggja upp traustið á ný. Gangi ykkur vel <3
Kynlíf Kynlífið með Evu Pandoru Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fleiri fréttir Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Sjá meira