Lífið

Tjaldaði á um­ferðar­eyju eftir að hafa tapað í fantasy

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bolli fer á kostum í atriðinu.
Bolli fer á kostum í atriðinu.

Í síðasta þætti af Dagbók lögreglunnar mátti sjá nokkur óborganleg atriði á borð við nágrannaerjur sem fóru úr böndunum, tjaldað var á umferðareyju og karaoke-söngvari féll fram af sviði.

Útvarpsmaðurinn Bolli Már Bjarnason leikur gallharðan Liverpool-mann í síðasta þætti sem hafnaði í neðsta sæti í Fantasy-deild vinahópsins. Refsingin fyrir það var að tjalda á miðri umferðareyju og gista þar. Lögreglan fékk tilkynningu um málið og urðu lögregluþjónarnir að bregðast við. Maðurinn var ekki tilbúinn að fara úr tjaldinu, þar sem refsingin yrði þá verri fyrir hann. Hér að neðan má sjá atriðið sjálft.

Klippa: Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy

Þættirnir Dagbók lögreglu byggja á raunverulegum útköllum sem hafa komið fyrir í dagbók lögreglunnar. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.