Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 11. október 2026 19:01 Eva Pandora er kynfræðingur með meistaragráðu í kynsálfræði og kynlífsráðgjöf (e. MSc Sexual Psychology and Sexual Therapy) frá London Metropolitan University. Lesendur geta sent spurningu til hennar í forminu hér fyrir neðan. Canva/Vísir Spurning frá 59 ára karlmanni: „Ég missti konuna mína fyrir nokkrum mánuðum. Hef alls enga löngun til að hefja samband. Sakna hennar og okkar lífs og lufsast í gegnum dagana í einmanaleika og söknuði. En það hafa komið stundir núna nýlega þar sem mig langar að finna nálægð, faðmlag, koss og kynlíf. Engin sérstök kona. Sé enga fyrir mér. Er þetta eðlilegt?“
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sárt en finna á sama tíma fyrir löngun í snertingu, nánd og kynlíf. Þú getur verið í djúpri sorg og samt fundið fyrir kynlöngun. Þú getur saknað hennar og samt langað að finna annan líkama nálægt þínum. Og þú getur verið alls ekki tilbúinn í nýtt samband en samt saknað þess að vera kysstur og snertur. Þú misstir meira en maka Þegar við missum maka missum við ekki bara manneskjuna sem við elskum. Við missum líka hversdagsleikann sem við áttum með henni, samtölin, félagsskapinn og öll litlu augnablikin sem fylgja því að deila lífinu með annarri manneskju. Og við missum líkamlega nánd. Það er hluti sorgarinnar sem kannski er ekki alltaf jafn auðvelt að tala um. Það þykir eðlilegt að segja að maður sakni þess að vakna við hlið makans eða hafa einhvern til að tala við á kvöldin. Það getur verið erfiðara að segja upphátt að maður sakni þess að finna fyrir líkama annars einstaklings eða stunda kynlíf. En líkaminn hættir ekki að hafa þessar þarfir þegar við missum einhvern. Rannsóknir á kynverund eftir makamissi hafa einmitt sýnt að fólk getur upplifað mikla þrá eftir líkamlegri snertingu og kynferðislegri nánd samhliða sorginni. Sumir missa kynlöngun alveg um tíma á meðan aðrir finna hana aftur tiltölulega fljótt. Hjá sumum kemur hún og fer. Það er engin rétt tímalína. Kynlöngun þarf ekki að þýða að þú viljir fara í nýtt samband Við tengjum kynlíf og ástarsambönd oft mjög sterkum böndum en þetta tvennt þarf ekki alltaf að vera eitt hið sama. Þú getur fundið fyrir kynlöngun án þess að vera ástfanginn. Þú getur þráð snertingu án þess að vilja eignast nýjan maka. Þú getur líka verið tilbúinn í kynferðislega nánd löngu áður en þú ert tilbúinn að opna þig fyrir nýju ástarsambandi. Það sem þú lýsir í spurningunni þinni er einmitt eðlileg þrá í líkamlega nánd. Ekkert af þessu segir til um hversu mikið þú elskaðir konuna þína eða hversu djúpt þú syrgir hana. Sorg og löngun mega vera til á sama tíma Ef þú finnur fyrir sektarkennd yfir þessum hugsunum, eins og mér sýnist út frá spurningunni þinni, vil ég sérstaklega árétta: Löngunin í nánd er ekki svik við konuna þína. Hún þýðir ekki að þú sért búinn að syrgja hana, að þú sért að gleyma henni eða að þú sért tilbúinn að „halda áfram“. Sorg virkar ekki þannig. Þú þarft heldur ekki að gera neitt við þessa löngun. Þú þarft ekki að fara á stefnumót eða finna einhvern til að stunda kynlíf með bara vegna þess að þessi hluti af þér er farinn að láta á sér kræla. En ef það kemur að því einhvern daginn að þig langar að fylgja lönguninni eftir þá máttu það líka. Þá skiptir mestu máli að vera heiðarlegur við sjálfan þig og þá manneskju sem þú ert með. Ef þú ert ekki að leita að sambandi heldur fyrst og fremst nánd, snertingu eða kynlífi er mikilvægt að hinn aðilinn viti það líka. Og ef tilfinningarnar verða flóknar eftir á er það líka í lagi. Þú gætir fundið fyrir ánægju, sorg, sektarkennd, söknuði eða jafnvel öllu þessu í einu. Þú þarft ekki að velja á milli þess að syrgja konuna þína og þess að vera áfram manneskja með þörf fyrir snertingu, nánd og kynlíf. Hvort tveggja má vera til á sama tíma. Innilegar samúðarkveðjur og gangi þér vel <3
Kynlíf Kynlífið með Evu Pandoru Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Fleiri fréttir Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Sjá meira