Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. október 2026 16:23 Útvarpsmenn NRK skemmtu sér konunglega yfir íslensk-norsku símaatinu í Trévirki. Norskir útvarpsmenn hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum vegna símaats sem þeir gerðu í íslenska húsasmíðafyrirtækið Trévirki. Einn útvarpsmannanna talaði þar bulluíslensku og þóttist vera að leita sér að palli. Starfsmaðurinn kom af fjöllum en benti á Efnissöluna í Kópavogi.
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í íslenska fyrirtækið Trévirki. Á samfélagsmiðlum NRK birtist í dag myndband af atinu undir yfirskriftinni: „Hversu góður er Vegard eiginlega í íslensku?“ Vegard Ylvisåker talaði þar á „tulleislandsk“ sem mætti þýða sem bulluíslensku eða gríníslensku. Grín annarra Norðurlandaþjóða um íslensku gengur gjarnan út á að bæta ur-endingum við orð til að þau hljómi íslensk en Vegard fór einhvers konar milliveg milli íslensku og norsku. „Þetta er Sigurd Jórsalafare sem hringir. Ég er við að pyka meg en platting, en terrass, í húsinn minn og ég er ekki pæling, ég er ingen kúnna um þetta. Svo har þú pæling på hvað er trængir?“ segir Vergang en Sigurður Jórsalafari var konungur Noregs á tólftu öld. „Hvað vantar þig, segirðu?“ svarar maðurinn hjá Trévirki. „Ég skal pyka en platting, plattinger,“ segir Vergang svo og bætir við einhverju óskýru um Trévirki. „Hvaða týpur af trévirkir eða?“ spyr hann svo. Vergang spjallaði við starfsmann Trévirkis í um mínútu. „Trévirki, það er eins og rafvirki. Sá sem vinnur með tré,“ segir maðurinn hjá Trévirki. „Ahhh, þið eruð ekki með plank og...?“ spyr Vergang. „Neiii, það sem ég held að þú getir hringt í væri Efnissalan í Kópavogi,“ segir maðurinn hjá Trévirki. „Ég ka ringa út í Efnissalan svo það eitthvað attakort,“ segir Vergang. „Gerðu það, gangi þér vel,“ svarar Trévirkinn. Vergang segir þá eitthvað illskiljanlegt og bætir við að lokum: „Hafðu góðan dag.“ Rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafa horft á myndbandið á Facebook og TikTok og margir skemmt sér konunglega yfir því miðað við ummæli netverja. Vinsælasta kommentið við TikTok-myndbandið skrifar íslenskur notandi sem segir: „Som en Íslending, så høres det der mer ut som Færøysk“ eða „Sem Íslendingur þá hljómar þetta meira eins og færeyska“.
Grín og gaman Fjölmiðlar Noregur Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sjá meira