Golf

Sleppir verð­launa­af­hendingu til að losna við her­skyldu

Andri Broddason skrifar
Tom Kim lætur mótlæti bandarísku áhorfendanna ekki neitt á sig fá.
Tom Kim lætur mótlæti bandarísku áhorfendanna ekki neitt á sig fá. James Gilbert/Getty Images

Kóreski kylfingurinn Tom Kim er búinn að spila frábærlega í Forsetabikarnum í golfi fyrir alþjóðlega liðið sem mætir liði Bandaríkjanna. Hann mun þó ekki geta verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna ef lið hans vinnur mótið.

Forsetabikarinn er spilaður í Chicago en Kim þarf að drífa sig eftir mótið til Japan þar sem hann er að keppa á Asíuleikunum í golfi. Ástæðan fyrir því að mótið skiptir miklu máli fyrir hann er vegna þess að ef hann nær nógu góðum árangri á mótinu þá getur hann sleppt við herskyldu í heimalandinu sínu. Hann þarf helst að sækja sigur til þess að losna við herskylduna en samkvæmt Golfdigest dugar einnig fyrir hann að fá liðsmedalíu.

Allir karlmenn frá Suður-Kóreu þurfa að sinna ákveðinni herskyldu fyrir 28 ára aldur nema ef þú hefur sýnt mikinn árangur á sviði íþrótta, lista eða öðru merkilegu. Kim á að spila á Asíuleikunum á miðvikudaginn og getur því ekki beðið eftir verðlaunaafhendingunni.

Í dag fer fram lokahluti keppninnar og setti fyrirliði alþjóðlega liðsins, Geoff Ogivly Kim, í annan leik dagsins. Þá klárar hann fyrr og hefur því meiri tíma til þess að koma sér til Japan og gera sig kláran fyrir Asíuleikana.

Alþjóðlega liðið var með góða forystu fyrir síðasta keppnisdaginn og getur unnið mótið í annað skiptið í sögu liðsins. Kim hefur spilað vel og unnið þrjár af fjórum viðureignum sem hann hefur keppt í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×