Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Valur Páll Eiríksson skrifar 24. september 2026 11:33 Hákon Rafn er klár í slaginn í fjarveru Elíasar Rafns Ólafssonar. Vísir/Sigurjón Hákon Rafn Valdimarsson er laus við meiðsli og klár í slaginn fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeildinni. Leiða má að því líkur að hann standi milli stanganna í leikjunum fjórum í fjarveru Elíasar Rafns Ólafssonar.
Elías Rafn meiddist rétt fyrir gluggann og missir af öllum fjórum leikjunum. Hákon Rafn var aðalmarkvörður liðsins áður en Elías Rafn tók af honum stöðuna í síðustu undankeppni. Klippa: Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Hákon Rafn hefur ekki enn spilað leik í haust en hann missti af deildabikarleik Brentford fyrir tveimur vikum vegna bakmeiðsla. Þau meiðsli eru að baki og hann klár í slaginn. „Eins og alltaf þegar maður spilar þá er það gott tækifæri og það þarf að standa sig,“ segir Hákon sem segir um meiðslin: „Skrokkurinn er góður, það er fínt eftir á að hafa hvílt og komið bakinu í lag. Það er bara frábært að það sé komið.“ Þannig að þú ert alveg klár í fjóra leiki og þetta fer ekkert að taka sig upp aftur? „Vonandi ekki. Ég ætla ekki að jinxa neitt. Vonandi verður þetta allt í góðu,“ segir Hákon Rafn. Gæti þurft að endurskoða herbergisfélagann Komandi verkefni er sérstaklega langt eftir breytingar FIFA á landsleikjagluggum þar sem tveir gluggar voru sameinaðir í einn. Hákon er með Loga Tómassyni í herbergi og segir léttúðlega að mögulega þurfi að gera breytingar á miðri leið. „Ég er með Loga, við þurfum kannski að splitta okkur upp eitthvað,“ segir Hákon léttur. Rúnar Alex Rúnarsson ræðir við Cristiano Ronaldo. Hann er kominn aftur í hópinn eftir þónokkra fjarveru.Vísir/Vilhelm Rúnar Alex Rúnarsson snýr þá aftur í landsliðshópinn eftir nokkurra ára fjarveru. Hákon fagnar því. „Rúnar Alex var hérna þegar ég kom fyrst inn í landsliðið og tók mjög vel á móti mér. Hann er frábær gæji og það er frábært að hann sé okkur hérna aftur,“ segir Hákon. Þarf þá ef til vill að fá hann með þér í herbergi frekar en Loga? „Sjáum til, við gætum þurft að skipta þessu,“ segir Hákon og hlær. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Kristall Máni Ingason er himinlifandi að vera með íslenska landsliðinu fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Hann er orðinn fastamaður í hópnum og nýtur þess vel. 24. september 2026 10:33 Dauði varnarmannsins „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu. 24. september 2026 08:00 Hvernig á að leysa varnarleikinn? Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum. 23. september 2026 07:59 Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð. 22. september 2026 18:00 Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Sjá meira
„Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Kristall Máni Ingason er himinlifandi að vera með íslenska landsliðinu fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Hann er orðinn fastamaður í hópnum og nýtur þess vel. 24. september 2026 10:33
Dauði varnarmannsins „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu. 24. september 2026 08:00
Hvernig á að leysa varnarleikinn? Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum. 23. september 2026 07:59
Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð. 22. september 2026 18:00