Hvernig á að leysa varnarleikinn? Valur Páll Eiríksson skrifar 23. september 2026 07:59 Aron Einar mun spila sína síðustu landsleiki í haust. Guðlaugur Victor verður fastamaður í vörninni og Stefán Teitur gæti verið þar einnig. Samsett/Vísir Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum.
Aron Einar Gunnarsson tilkynnti í dag að leikirnir í haust yrðu hans síðustu með liðinu. Hann er einn fárra varnarmanna í hópnum og einhverjir hafa áhyggjur af stöðunni. Klippa: Hvernig á að leysa varnarleikinn? Guðlaugur Victor Pálsson segir ekki um séríslenskt fyrirbæri að ræða, að skortur sé á varnarmönnum. „Fyrir mitt leyti meira bara svona glóbal dæmi frekar en eitthvað íslenskt. Ég hef séð þetta bara núna í þeim löndum sem ég hef verið að spila í að það er ekkert rosalega mikið af hreinræktuðum varnarmönnum; þessum svona gamla skóla varnarmönnum að koma upp,“ „Fótboltinn er bara búinn að breytast rosalega mikið. Núna snýst þetta allt um að spila sig út úr vörninni og boltatækni. Ég held þetta sé miklu meira bara heildar glóbal dæmi frekar en eitthvað íslenskt af því ég sé þetta á mörgum öðrum stöðum,“ segir Guðlaugur Victor. Guðlaugur er einn fjögurra í hópnum sem kalla má miðvörð en er einnig eini hreinræktaði hægri bakvörðurinn. Búast má við að mikið mæði á honum. En er ekkert mál fyrir 35 ára gamla menn að spila fjóra leiki á aðeins ellefu dögum? „Nei, af því að ég veit að ég passa mjög vel upp á sjálfan mig. Ég eyði rosalega miklum tíma og orku í endurheimt og er mjög fagmannlegur þegar kemur að því þannig að ég hef engar áhyggjur af því.“ Er Stefán lausnin? Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson hefur talað fyrir því að Stefán Teitur Þórðarson spili miðvarðarstöðuna með landsliðinu. Hvernig gengur það allt saman? „Það gengur bara flott sko,“ segir Stefán Teitur. „Við höfum átt góð samtöl við Arnar og ég er mjög spenntur fyrir mínu hlutverki hérna í landsliðinu. Sama þótt að hann vilji að ég spili miðvörð eða miðjumann eða hvað það er að þá veit hann, og ég held að allir hérna viti hvers konar karakter ég er með það að gera, að þá mun ég spila þar sem þjálfarinn minn segir mér að spila,“ Þannig að það er þá áskorun sem þú ert spenntur fyrir eða hvað? „Já, ég er mjög spenntur fyrir því og ef það þýðir að ég spili leikina þá er ég mjög spenntur.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Fleiri fréttir „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Sjá meira