Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Valur Páll Eiríksson skrifar 15. september 2026 22:18 Rodri segir val sumarsins hafa verið erfitt. EPA/QUIQUE GARCIA Rodri, miðjumaður Barcelona, segist hafa haft samband við José Mourinho, þjálfara Real Madrid, símleiðis eftir að hann tók þá erfiðu ákvörðun að hafna Madrídingum fyrir katalónska liðið.
Hinn þrítugi Rodri batt enda á sjö ára Englandsdvöl sína er Barcelona keypti hann frá Manchester City á 60 milljónir evra í sumar, skömmu eftir að Rodri leiddi Spán til heimsmeistaratitils og var valinn besti leikmaður mótsins. Real Madrid vildi einnig fá hann í sínar raðir en hann valdi Barcelona yfir þá hvítklæddu eftir samræður við þjálfara liðanna, Hansi Flick og José Mourinho. „Ég hefði viljað eiga rólegra frí í sumar, en þetta fór ekki alveg þannig,“ segir Rodri við spænska miðilinn Mundo Deportivo. „Ég þurfti að sinna greiningarvinnu og taka stóra ákvörðun milli tveggja af stærstu félögum heims. Að lokum var það íþróttahliðin sem stýrði mér, ég valdi það sem gerði mig spenntari og hvar ég gat vaxið meira sem leikmaður,“ „Þetta var alls ekki einfalt. Að segja nei við Madríd er ekki auðvelt, hvað þá þegar framkoma þeirra í minn garð var til fyrirmyndar. En að lokum sannfærðu Hansi (Flick, þjálfari) og Deco (yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona) mig,“ segir Rodri. Um samræður hans við Mourinho segir Rodri: „Ég vil ekki greina frá einkasamræðum okkar á milli, en hann sýndi mér augljóslega áhuga og skýrði frá því hvað ég myndi færa liðinu og hlutverk mitt yrði,“ „Hann kom vel fram við mig. Þegar ég tók ákvörðunina ákvað ég líka að hringja í hann til að þakka honum fyrir áhugann og framkomu hans í minn garð. Hann er frábær þjálfari, hefur sýnt það ítrekað í mörg ár og Real Madrid verður erfiður andstæðingur í deildinni.“
Spænski boltinn Real Madrid CF FC Barcelona Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira