Innlent

For­sætis­ráðherra um gjald­skrár­hækkanir og ESB-um­sókn

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. vísir

Boðaðar gjaldskrárhækkanir ríkisins gætu orðið minni en áður hafði verið tilkynnt gangi þríhliða viðræður við aðila vinnumarkaðarins vel. Þetta kom fram í viðtali við forsætisráðherra á Sprengisandi í morgun.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði jafnframt að ríkisstjórnin hafi rætt hvort draga ætti umsókn um aðild að ESB alfarið til baka.

Þingkosningar í Svíþjóð fara fram í dag og er spennan mikil. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru sjónarmun á undan samkvæmt skoðanakönnunum en að sögn stjórnmálafræðings gæti orðið reynst erfitt að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum.

Yfirhafnarstjóri Múlaþings segir sláandi mun á bókunarstöðu skemmtiferðaskipa næsta sumar miðað við síðustu ár. Hann segir ríkisstjórnina hringla með innviðagjald og lýsir hruni í komum skipa.

Staða nemenda með erlendan bakgrunn hefur verið rædd í vikunni í kjölfar niðurstöðu PISA-könnunarinnar. Farið verður yfir stöðu þessara nemenda með verkefnastjóra hjá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu.

Í íþróttunum heyrum við í leikmanni nýkrýndra bikarmeistara Þróttar frá Reykjavík og þá hefst úrslitakeppnin í Bestu deild karla í dag með fjórum leikjum. Í enska boltanum er síðan stórleikur á dagskránni.

Fréttatímann í heild má heyra hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×