Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. september 2026 15:58 John Snorri reyndi að klífa K2 að vetri til árið 2021 og lét lífið á fjallinu. Heimildarmyndin Hinsta ferðin á K2 fjallar um örlagaríka tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að verða fyrstir til að klífa fjallið K2 að vetri til árið 2021. Kvikmyndin verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar RIFF þann 24. september og mun Páll Guðmundsson, náinn vinur Johns, halda stutta tölu fyrir sýninguna.
K2 er næsthæsta fjall heims og hafði fram að árinu 2021 aldrei verið klifið að vetrarlagi en mennirnir þrír héldu á fjallið við vægðarlausar aðstæður í veðravítinu sem geisar á þessum árstíma. Þremenningarnir voru þó ekki einir á fjallinu því þeim að óvörum urðu þeir samferða leiðangursmönnum úr öðrum hópum, meðal annars fjallgöngumönnum undir forystu nepalska fjallgöngumannsins Nirmal „Nims“ Purja sem tókst að klífa fjallið. Ferðalaginu lauk þó með hörmulegum afleiðingum fyrir Muhammad Ali og John Snorra sem létu báðir lífið á fjallinu. Sajid Sadpara sneri einn lífs af úr fjallgöngunni eftir að hafa farið á undan hinum tveimur niður fjallið þegar súrefniskútur hans hætti að virka. Heimildarmyndin Hinsta ferðin á K2 (The Last First: Winter K2) fjallar um þessa tilraun þremenninganna, er eftir bandaríska verðlaunaleikstjórann Amir Bar-Lev og var heimsfrumsýnd sem opnunarmynd á Sundance-hátíðinni fyrr á árinu. Myndin er ekki aðeins metnaðarfull og vönduð fjallgöngumynd, sem varpar ljósi á gífurlega erfiðar og hættulegar aðstæður, heldur fjallar hún um það sem gerist þegar metnaður, frægð, peningar og samfélagsmiðlar blandast saman við hættulegustu aðstæður sem hægt er að hugsa sér með þeim afleiðingum að fimm fjallgöngumenn láta lífið. Spurningar vakna um ábyrgð, ákvarðanir og hvort komast hefði mátt hjá þessum dapurlegu endalokum. Það sem gerir myndina sérstaklega áhugaverða frá íslensku sjónarhorni er að John Snorri er aðalpersóna myndarinnar. Myndin byggir að miklu leyti á myndefni leiðangursmannanna sjálfra á fjallinu og á viðtölum við þá sem komu að leiðangrinum með einum eða öðrum hætti, þar á meðal John Snorra sjálfan; Línu Móey, ekkju Snorra, og fleiri. Sjá einnig: John Snorri reyndi hið fáránlega til að takast hið ómögulega Titill myndarinnar, The Last First, vísar til þess að ferðin á K2 var „síðasta fyrsta“ fjallgangan upp fjall yfir átta þúsund metrum sem enn hafði ekki verið klifið að vetri til. Fyrir sýninguna á RIFF þann 24. september mun Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og náinn vinur Johns Snorra, halda stutta tölu. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) hefst í næstu viku, fimmtudaginn 24. september, og stendur yfir til 4. október næstkomandi. Á dagskrá eru 265 kvikmyndir frá sextíu löndum og landsvæðum, 66 myndir í fullri lengd og 199 stuttmyndir, og verður Portúgal í brennidepli í ár. Meðal heiðursgesta á RIFF í ár verða sænski leikarinn Alexander Skarsgård, hasarmyndaparið David Leitch og Kelly McCormick, portúgalska leikkonana Maria de Medeiros og íslenski kvikmyndagerðarmaðurinn Sigurjón Sighvatsson.
Bíó og sjónvarp John Snorri á K2 Fjallamennska Nepal Tengdar fréttir Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi „Þetta var ekki gert í einhverju hugsunarleysi. Þetta var maður sem hafði alla ævi verið í toppformi, búinn að æfa þetta og farið á alla þá staði sem hægt var að æfa sig á. Þetta var alveg raunhæfur möguleiki. Ef einhver gat þetta, þá gat hann það,“ segir Einar Bárðarson um vin sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson. 25. júlí 2026 07:01 Reyndu að færa lík Johns Snorra í tvær klukkustundir Jarðneskar leifar Johns Snorra Sigurjónssonar liggja á einum erfiðasta staðnum á fjallinu K2 og illa hefur gengið að færa þær af gönguleiðinni. Nýfallinn snjór skapar snjóflóðahættu á umræddu svæði og hamlar aðgerðum. 29. júlí 2022 13:54 Fjölskylda John Snorra greinir frá missinum í pakistönskum miðlum Fjölskylda fjallagarpsins John Snorra sem fórst á fjallinu K2 á seinasta ári er komin til Pakistan til þess að ganga frá jarðneskum leifum hans. Fjölskyldan hefur farið á fund með forseta Pakistan og talað um missinn í pakistönskum fjölmiðlum. 27. júlí 2022 18:07 Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi „Þetta var ekki gert í einhverju hugsunarleysi. Þetta var maður sem hafði alla ævi verið í toppformi, búinn að æfa þetta og farið á alla þá staði sem hægt var að æfa sig á. Þetta var alveg raunhæfur möguleiki. Ef einhver gat þetta, þá gat hann það,“ segir Einar Bárðarson um vin sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson. 25. júlí 2026 07:01
Reyndu að færa lík Johns Snorra í tvær klukkustundir Jarðneskar leifar Johns Snorra Sigurjónssonar liggja á einum erfiðasta staðnum á fjallinu K2 og illa hefur gengið að færa þær af gönguleiðinni. Nýfallinn snjór skapar snjóflóðahættu á umræddu svæði og hamlar aðgerðum. 29. júlí 2022 13:54
Fjölskylda John Snorra greinir frá missinum í pakistönskum miðlum Fjölskylda fjallagarpsins John Snorra sem fórst á fjallinu K2 á seinasta ári er komin til Pakistan til þess að ganga frá jarðneskum leifum hans. Fjölskyldan hefur farið á fund með forseta Pakistan og talað um missinn í pakistönskum fjölmiðlum. 27. júlí 2022 18:07