Langflestir upplifðu sólmyrkvann Kjartan Kjartansson skrifar 9. september 2026 09:05 Fólk safnaðist saman á Gróttu til þess að fylgjast með almyrkvanum 12. ágúst. Langsamlega flestir fylgdust með honum heima hjá sér eða í eigin heimabyggð. Vísir/Anton Brink Níu af hverjum tíu upplifðu sólmyrkvann sem gekk yfir Ísland í ágúst. Langflestir þeirra fylgdust með sjónarspilinu heima hjá sér eða í sinni heimabyggð.
Almyrkvi varð á sólu yfir vestanverðu landinu 12. ágúst. Umtalsverður deildarmyrkvi sást annars staðar á landinu. Marktækur munur var á því hversu margir sögðust hafa upplifað myrkvann á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar í könnun sem Gallup gerði. Þannig sagðist 91 prósent höfuðborgarbúa hafa upplifað sólmyrkvann en níu prósent ekki. Á landsbyggðinni sögðust 86 prósent hafa upplifað hann en fjórtán prósent ekki. Fæstir sóttu vatnið yfir lækinn því sextíu prósent sögðust hafa fylgdst með myrkvanum heima hjá sér og þrjátíu prósent til viðbótar annars staðar í eigin bæjarfélagi. Ellefu prósent sögðust hafa ferðast milli landshluta til þess að upplifa sólmyrkvann. Sex af hverjum tíu svarendum upplifðu sólmyrkvann á höfuðborgarsvæðinu, ellefu prósent á Vesturlandi, tíu prósent á Reykjanesi og níu prósent á Norðurlandi. Aðeins þrjú prósent sögðust hafa upplifað hann á Vestfjörðum þar sem fyrirfram var vitað að almyrkvinn varði lengst. Skýjað var á landinu þegar almyrkvinn gekk yfir. Þrátt fyrir það sögðust fjórtán prósent svarenda hafa notað sólmyrkvagleraugu og fjórtán til viðbótar að hluta til. Hátt í þrír af hverjum fjórum notuðu gleraugun hins vegar ekki.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Skoðanakannanir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira