Fótbolti

Daníel Guð­john­sen fékk tæki­færi eftir mikla ó­vissu

Aron Guðmundsson skrifar
Daníel Tristan í leik með Malmö
Daníel Tristan í leik með Malmö Getty/Michael Campanella

Daníel Tristan Guðjohnsen fékk tækifæri í byrjunarliði Malmö í kvöld eftir að hafa verið nálægt því að fara frá liðinu til Þýskalands á dögunum.

Daníel var í byrjunarliði Malmö gegn AIK í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Var þetta annar byrjunarliðsleikur Daníels á tímabilinu með Malmö en hann spilaði 65 mínútur í kvöld. 

Í viðtali sem birtist í sænska miðlinum Fotbollskanalen fyrr í dag sagði Daníel frá því að hann hefði verið nálægt því að ganga í raðir Arminia Bielefeld í Þýskalandi.

„Það gerðist margt þessa daga. Ég vissi í raun ekki hvað myndi gerast. Þurfti bara að taka stöðuna dag frá degi,“ sagði Daníel meðal annars í samtali við Fotbollskanalen.

Þó svo að ekki hafi orðið af félagskiptum hans er Daníel ánægður í herbúðum Malmö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×