Formúla 1

Gasly ó­vænt á ráspól í fyrsta sinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gasly gat brosað sínu breiðasta í dag.
Gasly gat brosað sínu breiðasta í dag. EPA/Zsolt Czegledi

Pierre Gasly hefur Monza-kappaksturinn á Ítalíu á morgun fremstur. Þessi ökuþór Alpine komst á ráspólinn á ögurstundu, og það í fyrsta sinn á ferlinum.

Gasly hafði verið á meðal efstu manna í tímatökunni og var þriðji fyrir lokahring manna í þriðja hluta tímatökunnar. George Russell á Mercedes leiddi og Oscar Piastri á McLaren annar.

Hvorki Russell né Piastri bættu tíma sinn á lokahringnum en Frakkinn Gasly á Alpine gjörsamlega flaug á brautinni og kom í mark á tímanum 1:21,786, sex hundraðshlutum á undan Russell sem verður við hlið hans á ráslínunni.

Piastri byrjar þriðji og Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton fjórði og fimmti í heimakappakstri Ferrari-liðsins.

Max Verstappen á Red Bull er sjötti og þrátt fyrir að hafa verið á áttunda besta tímanum verður Colapinto, liðsfélagi Gasly á Alpine, sjöundi þar sem Kimi Antonelli var á sjöunda besta tímanum en mun ræsa aftastur vegna vélarskipta.

Kappaksturinn er klukkan 13:00 á morgun en bein útsending hefst á Sýn Sport Viaplay klukkan 12:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×