Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun JUPO 2. september 2026 10:55 JUPO.iser íslensk netverslun sem býður upp á mjög fjölbreytt vöruúrval sem spannar allt frá verkfærum til eldhúsinnréttinga, garðhúsgagna og landbúnaðartækja. Margir Íslendingar kannast við að finna spennandi vöru á erlendri netverslun, en hika þegar kemur að greiðslunni. „Get ég treyst þessu? Kemur varan? Hvað ef eitthvað fer úrskeiðis?“
Við hjá JUPO viljum eyða þessari óvissu. Þess vegna bjóðum við upp á greiðslu við afhendingu á Íslandi. Hægt er að velja að greiða ekkert fyrirfram heldur greiða þegar vörurnar eru afhentar heim að dyrum eða á næsta pósthúsi. Hægt er að greiða sendlinum með debet- eða kreditkorti, reiðufé eða millifærslu. Einnig er staðgreiðsla í boði með staðgreiðsluaslætti og hægt er að skipta greiðslunni til helminga, fyrir og eftir afhendingu. Hvað er JUPO? JUPO.is er íslensk netverslun í eigu hjónanna Júlíusar og Justynu og hefur verið starfrækt í tæp tvö ár. Vöruúrvalið spannar allt frá verkfærum til eldhúsinnréttinga, garðhúsgagna og landbúnaðartækja. Íslenska netverslunin JUPO.is er í eigu hjónanna Júlíusar og Justynu. „Hugmyndin kviknaði þegar við fluttum til Póllands á COVID-tímanum og fórum að gera upp íbúð. Justyna er byggingaverkfræðingur og saman fórum við að skoða vörur, bera saman gæði og lesa umsagnir. Í Póllandi eru neytendur mjög duglegir að láta skoðanir sínar í ljós, góðar vörur fá jákvæðar umsagnir og lélegar vörur fá slæmar. Þarna uppgötvuðum við gríðarlegt úrval af gæðavörum á mun hagstæðara verði en við áttum að venjast á Íslandi,“ segir Júlíus. „Við spurðum okkur þá af hverju Íslendingar ættu ekki líka að geta fengið góðar vörur á sanngjörnu verði? Þannig varð netverslunin JUPO.is til.“ Mjög gott vöruúrval „Í dag eru yfir 3.000 vörunúmer í versluninni,“ segir Júlíus. „Við leggjum áherslu á gæði, gott verð og vörur sem við myndum nota sjálf. Við bjóðum meðal annars upp á: ● Baðherbergisvörur ● Eldhúsinnréttingar ● Garðhúsgögn ● Rafstöðvar ● Ferðarafhlöður ● Rafsuðuvélar ● Verkfæraskúra ● Verkfæraskápa, hillur og rekka ● Laser, suðu- og hreinsivélar ● Landbúnaðartæki Hvernig virkar þetta? „Við rekum lítið vöruhús í Póllandi. Þegar pöntun berst kaupum við vöruna frá birgjum okkar og yfirförum hana áður en hún er send til Íslands,“ segir Júlíus. „Það eru sjö birgjar sem bera hitann og þungann af starfsemi okkar. Atlas sér um eldhúsvörur, Focus Garden um garðvörur, Hydrosan um baðvörur, Kawmet og Kratki bjóða upp á kamínur, MEXEN er með baðvörur og miðstöðvarofna og Spartus er með rafsuðuvélar. Svo eru fimmtán aðrir framleiðendur sem við höfum umboð fyrir.“ Pantanir eru sameinaðar í sendingar til að halda verðinu eins lágu og mögulegt er. „Yfirleitt sendum við vörur til Íslands á um þriggja vikna fresti og sendingartími til landsins er að jafnaði 7–10 dagar. Vörurnar eru síðan afhentar heim að dyrum eða á næsta pósthúsi,“ útskýrir Júlíus. Varahlutir og ábyrgð í góðu lagi Um allar vörur hjá JUPO gilda íslensk neytendalög og ábyrgðarskilmálar. „Ef varahluti vantar eða ef eitthvað skemmist eða bilar höfum við möguleika á að senda nýja hluti frá Póllandi, fá varahluti senda með hraðsendingu eða vinna með verkstæðum um allt land fyrir stærri tæki. Mottóið okkar er einfalt: Við seljum ekkert sem við myndum ekki nota sjálf.“ Hér fyrir neðan má sjá úrval vara sem fást hjá JUPO. Novweld hefur framleitt og selt SPARTUS rafsuðuvélar í tæp 30 ár. Vörulínan samanstendur af tæplega 400 vörunúmerum. Focus Garden hefur selt garðhúsgögn og verkfæraskúra í bráðum 20 ár. Vörulína fyrirtækisins inniheldur 320 vörunúmer. Hydrosan hefur selt baðherbergisbúnað í tæp 20 ár. Fyrirtækið er með ríflega 760 vörunúmer. Atlas-Eldhús hafa verið framleidd í yfir 30 ár við góðan orðstír. Hægt er að sérsmíða allar innréttingar og Jupo á Íslandi er með eigin hönnuð. MEXEN er með mikið úrval af eldhúsvöskum og baðherbergisbúnaði. Einnig eru þeir með vandaða miðstöðvarofna sem henta íslenskum aðstæðum. MEXEN hefur starfað í 18 ár og hefur hlotið fjölda neytendaverðlauna. Toolport er þýskur framleiðandi sem hefur framleitt og selt tjöld af ýmsum gerðum í yfir 40 ár. Þeir bjóða upp á pergólur sem fyrirtækið fullyrðir að standist íslenskt veður, svo lengi sem þau eru vel fest niður. Köler er þýskt vörumerki staðsett í Póllandi sem framleiðir og selur hágæða gas- og kolagrill úr ryðfríu stáli með grindum úr járnsteypu. Einnig bjóða þeir upp á pítsaofna og keramikgrill. Toya S.A. er 36 ára fyrirtæki og hefur framleitt og selt m.a. YATO og VOREL verkfæri í yfir 20 ár og er með rétt rúmlega 200 vörunúmer. ARPAL er úkraínskt fyrirtæki og hefur starfað í 13 ár. Trjávinnslutæki þeirra gera eldiviðarframleiðslu mun auðveldari með sérstökum kubbavélum fyrirtækisins. Einnig býður það upp á öfluga trjákurlara, bæði með eigin mótor og til tengingar við dráttarvélar. KAWMET er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið í málmsteypu í 45 ár. Fyrirtækið býður upp á mikið úrval af kamínum í retróstíl sem hafa verið mjög vinsælar. KRATKI hefur framleitt kamínur, eldstæði, arna og reykrör fyrir kamínur og arna í tæp 30 ár. Fyrirtækið er einnig með kamínur og arna með innbyggðum vatnshitara. Jupo á Íslandi er með löggiltan hönnuð sem hannar reykrör fyrir allar kamínur og arna, sem henta íslenskum aðstæðum. CORMAK er um 20 ára gamalt fyrirtæki og er með gríðarlegt úrval af málm- og trévinnslutækjum eins og loftpressur, blikkvinnsluvélar og vöruhúsalausnir. GENERGY er spænskt fyrirtæki sem hefur starfað í 19 ár og er með mikið úrval af bensín- og dísilrafstöðvum. Einnig býður það upp á ferðarafhlöður, dælur og öflug ljósamöstur, knúin af rafhlöðum. KALTMANN-rafstöðvar eru ódýrar og nettar rafstöðvar sem henta í léttari verkefni. Þær hafa verið í sölu í um 20 ár. Könner & Söner-rafstöðvar eru þýskar, loftkældar dísilrafstöðvar sem hafa reynst vel. SID er ungur og upprennandi pólskur framleiðandi landbúnaðartækja og vinnuvéla.
Verslun Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira