Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Birgir Olgeirsson skrifar 1. september 2026 12:30 Ursula von der Leyen á ráðstefnu frönsku atvinnurekendasamtakanna MEDEF í París. Þar sagði hún of mikinn sparnað evrópskra heimila liggja á bankareikningum og að skapa þyrfti hvata svo hann færi í fjárfestingar í Evrópu. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir of mikið af sparnaði evrópskra heimila liggja á bankareikningum á sama tíma og meiri fjárfestingu þurfi til að auka hagvöxt og samkeppnishæfni Evrópu. „
Evrópa á sparnað. Því miður liggur þessi sparnaður óhreyfður,“ sagði von der Leyen á ráðstefnu frönsku atvinnurekendasamtakanna MEDEF í París á fimmtudag. Hún sagði tíu þúsund milljarða evra af sparnaði heimila liggja á bankainnstæðum og að stór hluti annars sparnaðar Evrópubúa væri fjárfestur utan álfunnar. Evrópa þyrfti að koma meira af þessu fjármagni í þjónustu evrópskra fyrirtækja. Von der Leyen sagði mörg evrópsk fyrirtæki eiga erfitt með að fjármagna vöxt sinn. Verkefni strönduðu vegna þess að áhættan væri of mikil, fjármagn of dýrt eða eftirspurn óviss. Til lengri tíma þyrfti nýsköpun, aukin framleiðni og vöxtur fyrirtækja að knýja hagvöxt í Evrópu. Reuters hefur fjallað um sömu áform og segir markmiðið með aukinni samþættingu fjármagnsmarkaða meðal annars vera að nýta betur þá tíu þúsund milljarða evra sem liggja á bankareikningum og beina meira fjármagni í fjárfestingar. Vilja skapa hvata til fjárfestinga Þetta er hluti af svokölluðu sparnaðar- og fjárfestingasambandi ESB. Von der Leyen sagði tillögur framkvæmdastjórnarinnar geta skilað allt að 470 milljörðum evra í auknum fjárfestingum. Framkvæmdastjórnin hefur meðal annars viljað skapa hvata fyrir almenning til að færa stærri hluta sparnaðar síns úr bankainnstæðum yfir í fjárfestingar. Financial Times greindi frá því í fyrra að framkvæmdastjórnin hefði hvatt aðildarríkin til að bjóða sérstaka fjárfestingarreikninga með skattalegum ívilnunum og aðgangi að meðal annars hlutabréfum, skuldabréfum og sjóðum. Fjárfestingarþörfin í Evrópu hefur lengi verið talin mikil. Mario Draghi, fyrrverandi forseti Seðlabanka Evrópu, mat í skýrslu sinni um samkeppnishæfni sambandsins að þörf væri á 750 til 800 milljörðum evra í viðbótarfjárfestingu á ári til að auka framleiðni og halda í við Bandaríkin og Kína. Reuters fjallaði ítarlega um skýrsluna þegar hún kom út.
Evrópusambandið Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent