Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Agnar Már Másson skrifar 24. ágúst 2026 14:13 Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hvað sjávarútveg varðar má segja að hún hafi skrifað leikbók Samfylkingarinnar í þeim efnum fyrir hugsanlegar aðildarviðræður. Vísir/Sara Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða.
Katrín er gestur dagsins í Vísi að viðræðum en hún var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur frá 2009 til 2013, sem sótti um aðild að Evrópusambandinu á sínum. Síðan var hún framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) 2016-2022 en hefur síðustu ár snúið sér að ráðgjöf en einnig spennusagnaskrifum. Leikbók Samfylkingarinnar í Evrópumálum Evrópusambandsaðild var eitt af höfuðstefnumálum Samfylkingarinnar þegar flokkurinn var stofnaður árið 2000. Það ár ákvað stjórn flokksins að ráðast í eins konar úttekt á hugsanlegum samningsmarkmiðum Íslands í mögulegum aðildarviðræðum við ESB. Samfylkingin gaf út rit þess efnis, „Ísland í Evrópu“, ári síðar undir ritstjórn Eiríks Bergmanns Einarssonar, sem er í dag stjórnmálafræðiprófessor við Bifröst. Þar skrifuðu Katrín og Ágúst Ólafur Ágústsson, síðar þingmaður, kafla um sjávarútveginn þar sem steinum var velt um það hvort – og þá hvernig – hægt væri að tryggja forræði yfir sjávarauðlind Íslendinga innan Evrópusambandsins. Þó að kvartöld sé liðin frá árinu 2001 og margt vatn runnið til sjávar síðan þá, vill Katrín meina að margt í þessari handbók standist enn. „Sérstakt stjórnsýslusvæði“ Mikið hefur verið deilt um hvort hugsanlegar undanþágur og sérlausnir fengjust. Þó að Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, hafi gefið út vilyrði fyrir sérlausnum í sjávarútvegi og landbúnaði hefur hún ekki gefið upp hvers konar sérlausnir það kynnu að vera. Katrín telur nær útilokað að fá varanlegar undanþágur frá gervallri sjávarútvegsstefnunni, en telur raunhæft að semja um að Ísland verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ fyrir fiskveiðar. Vísar hún meðal annars til þess að íslensk lögsaga liggi ekki að Evrópusambandsríkjunum og að fiskveiðistefna ESB snúist um sameiginlega stofna sem Ísland deili ekki með aðildarríkjum. Hún nefnir að kvótaútdeiling ESB byggi á veiðireynslu samkvæmt „hlutfallslegum stöðugleika“ og veltir því jafnvel fyrir sér hvort hugsanlega mætti yfirfæra nálægðarreglu (dreifræðisreglu) ESB með einhverjum hætti á Íslandsmið. „Og allt þetta samandregið getur leitt okkur að því að við gætum samið um að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði,“ segir Katrín. „Gamla“ og „nýja“ Samfylkingin snúist meira um verklag heldur en stefnu Þegar Kristrún Frostadóttir, nú forsætisráðherra, tók við stjórnartaumum í flokknum haustið 2022 lýsti hún því yfir að Evrópusambandsaðild yrði færð neðar í forgangsröð flokksins. Oft hafa átök milli „gömlu“ og „nýju“ Samfylkingarinnar verið sett í samhengi við þessa áherslubreytingu. En nú er flokkurinn kominn í ríkisstjórn og hefur samt sett Evrópumálin á dagskrá. Finnst þér eins og gamla Samfylkingin svokallaða sé [með þessari atkvæðagreiðslu] að uppskera það sem hún sáði? Katrín hlær við. „Sko, Samfylkingin er alþjóðasamstarfsflokkur og hefur alltaf verið, og gamla og nýja Samfylkingin snýr kannski meira að vinnubrögðunum. Það er að áherslurnar séu á kjör vinnandi fólks og venjulegs fólks. Evrópusambandið er meira tæki til að ná árangri í þeim efnum. Þetta er spurning um hvað kemur á undan,“ svarar Katrín, sem er fyrrverandi varaformaður flokksins. „Þannig að ég veit ekki. Mér finnst þetta ekkert alveg vera svona einfalt.“ Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að ofan og á öllum helstu streymisveitunum.
Vísir að viðræðum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira