Lífið

Hvað veistu um… bæjar­hátíðir?

Atli Ísleifsson skrifar
Fjölmenni á Ráðhústorginu á Akureyri.
Fjölmenni á Ráðhústorginu á Akureyri. Vísir

Bæjarhátíðir eru fyrir löngu orðnar fastur liður í íslensku sumrinu og gefa íbúum víða um land tækifæri til að fagna saman, kynna heimabyggðina og taka á móti gestum.

Bæjarhátíðirnar eiga sér margar langa sögu og hafa orðið að mikilvægum hluta af menningu og sjálfsmynd bæjarfélaganna. Líf og fjör skapast í bæjunum og eru hátíðirnar oft kærkomið tilefni fyrir fólk sem flutt hefur á brott að koma aftur í heim. Fyrir gesti eru hátíðirnar jafnframt skemmtileg leið til að kynnast íslensku samfélagi, fólki og hefðum.

En hvað veistu um bæjarhátíðirnar á Íslandi?

Hvað veistu um…? er liður á Vísi á mánudags- og fimmtudagskvöldum þar sem lesendur fá tækifæri til að kanna þekkingu sína á ákveðnu máli og geta skorað svo á vini, fjölskyldu og samstarfsmenn.

Áður hefur meðal annars verið spurt um:

Öll fyrri kvissin má svo finna á undirsíðu Hvað veistu um...?

Taktu bæjarhátíðakvissið að neðan!


Tengdar fréttir

Hvað veistu um… skák?

Skák er eitt vinsælasta spil í heimi þar sem markmið leiksins er að máta kóng andstæðingsins, setja hann í stöðu þar sem hann kemst ekki undan hótun.

Hvað veistu um… Mos­fells­bæ?

Mosfellsbær er sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, staðsett norðan við Reykjavík. Bærinn er þekktur fyrir fallegt náttúrulegt umhverfi með fjöllum, dölum og strönd.

Hvað veistu um... Snæ­fells­nes?

Snæfellsnes er langt og fallegt nes á Vesturlandi með Faxaflóa sunnanmegin og Breiðafjarðar fyrir norðan. Meðfram nesinu eru svo fjallgarður og þar yst má finna Snæfellsjökul og þjóðgarðinn þar um kring.

Hvað veistu um... Tenerife?

Tenerife er stærsta eyjan í Kanaríeyjum og tilheyrir Spáni. Eyjan er þekkt fyrir hlýtt loftslag allt árið um kring, fallegar strendur og fjölbreytta náttúru sem gerir það að verkum að þetta er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna, ekki síst Íslendinga.

Hvað veistu um… pasta?

Líklegt má telja að pasta sé á borðum fjölmargra Íslendinga í dag enda auðvelt að elda og hentar vel með margs konar sósum, grænmeti, kjöti eða sjávarfangi.

Hvað veistu um… One Direction?

One Direction var bresk-írsk strákahljómsveit sem var stofnuð árið 2010 og var um tíma ein allra vinsælasta hljómsveit heims.

Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi?

Kirkjur hafa um aldir verið meðal helstu kennileita íslenskra bæja og byggðarlaga. Þær standa oft á áberandi stað og setja svip sinn á umhverfið með sérkennilegum arkitektúr og sögu.

Hvað veistu um… Stellu í orlofi?

Kvikmyndin Stella í orlofi er íslensk gamanmynd frá árinu 1986 sem fjallar um Stellu sem heldur í sumarbústaðaferð og lendir þar í alls kyns ævintýrum.

Hvað veistu um... frjálsar íþróttir?

Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum í Birmingham í Englandi er nú að baki þar sem hægt var að fylgjast með fremsta frjálsíþróttafólk Evrópu etja kappi um verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.