Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Kjartan Kjartansson skrifar 17. ágúst 2026 11:02 Íbúar Seyðisfjarðar kusu sér tvo fulltrúa í heimastjórn á sama tíma og þeir kusu til sveitarstjórnar Múlaþings í vor. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Innviðaráðuneytið hafnaði kröfu íbúa á Seyðisfirði um að íbúakosningar til heimastjórnar þar yrðu ógiltar. Íbúinn taldi framkvæmd þeirra hafa valdið ruglingi og að skýr vilji íbúa hefði ekki komið fram.
Kjósendur í Seyðisfirði kusu sér tvo fulltrúa til heimastjórnar samhliða sveitarstjórnarkosningum í Múlaþingi í maí. Heimastjórnin er fastanefnd sem fer með ákveðin verkefni innan sveitarfélagsins. Allir íbúar Seyðifjarðar voru í framboði í óbundinni persónukosningu. Kjósendur þurftu að skrifa nafn þanns sem þeir vildu kjósa í heimastjórnina og heimilisfang hans á kjörseðilinn. Einn íbúi taldið fyrirkomulagið valda ruglingi og kærði framkvæmd og niðurstöðu kosningarinnar til innviðaráðuneytisins. Hann taldi að leiðbeiningar og upplýsingagjöf til kjósenda hefði verið ófullnægjandi og að það hefði haft áhrif á niðurstöðuna. Krafðist hann þess að kosið yrði aftur. Á meðal þess sem kærandinn taldi til var að kjósendur hafi aðeins átt að skrifa eitt nafn á kjörseðilinn þó að tveir fulltrúa væru kosnir. Þær upplýsingar hefðu farið fram hjá mörgum kjósendum þrátt fyrir töluverða kynningu sveitarfélagsins. Þá hafi það valdið „töfum, óþægindum og jafnvel angist“ að finna heimilisfang þess sem ætlunin var að kjósa þar sem íbúaskrá sem lá frammi á kjörstað hafi verið í götuheitaröð. Í mörgum tilfellum hafi kjósendur því skrifað eigin nafn eða einhvers annars sem hann vissi hvar ætti heima frekar en þann sem þeir ætluðu að kjósa. Þessu til viðbótar taldi kærandinn að sú staðreynd að rúm þrjátíu prósent atkvæða hefðu farið til annarra en þeirra sem náðu kjöri þýddi að skýr vilji íbúa hefði ekki komið fram. Dreifing atkvæða fylgifiskur fyrirkomulagsins Innviðaráðuneytið hafnaði öllum rökum kærandans. Kosningin og framkvæmd hennar hefði þvert á móti verið vel kynnt í aðdraganda hennar og á kjörstað, þar á meðal að kjósendur þyrftu að skrifa heimilisfang þess sem þeir hygðust greiða atkvæði sitt. Varðandi íbúarskránna sem var í götuheitaröð benti ráðuneytið á að hún hafi verið aukaþjónusta við kjósendur umfram lagaskyldu sveitarfélagsins. Framsetning hennar gæti því ekki talist annmarki á kosningunni. Ráðuneytið tók ekki sérstaka afstöðu til þeirra raka mannsins að hlutfall atkvæða sem féllu til annarra en náðu kjöri hefðu dugað til þess að fella annan fulltrúann sem náði kjöri ef þau hefðu öll fallið til sama einstaklings. Yfirkjörstjórn benti á í sinni umsögn um kæruna að slík dreifing atkvæða væri ekki vísbending um annmarka heldur óhjákvæmilegur fylgifiskur kosningafyrirkomulagsins sem reglur kvæðu á um þar sem allir íbúa væru kjörgengir. „Úrslit ráðist af því hverjir fái flest atkvæði og þeir tveir efstu séu réttkjörnir aðalmenn. Tilgátu kæranda um að öll þau atkvæði sem féllu öðrum í skaut hefðu getað runnið til eins einstaklings og þannig haft áhrif á niðurstöðuna er hafnað,“ sagði í umsögninni. Það væri jafnframt gild og lögmæt beiting kosningaréttar í persónukosningu að kjósa sjálfan sig eða nágranna manns.
Múlaþing Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira