Fótbolti

Júlíus skoraði þegar Elfsborg hoppaði upp í þriðja sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Júlíus Magnússon skoraði sitt fyrsta deildarmark síðan í apríl.
Júlíus Magnússon skoraði sitt fyrsta deildarmark síðan í apríl. Getty/Jonathan Moscrop

Júlíus Magnússon og félagar í Elfsborg eru í góðum gír í sænska fótboltanum en þeir unnu sinn þriðja deildarleik í röð í kvöld.

Elfsborg vann þá 3-0 heimasigur á Vasteras og með því fór liðið úr sjöunda sæti og upp í það þriðja. Þrjú næstu lið fyrir neðan eiga þó leik inni. Vasteras var fyrir ofan Elfsborg fyrir leikinn en það breyttist í kvöld.

Júlíus kom Elfsborg í 1-0 á 19. mínútu og Momoh Kamara bætti svo við öðru marki á 72. mínútu. Kamara skoraði síðan sitt annað mark í leiknum aðeins fimm mínútum síðar en hann lagði einnig upp mark Júlíusar og átti stórleik.

Ari Sigurpálsson var á bekknum hjá Elfsborg en kom inn á sem varamaður sjö mínútum fyrir leikslok. Júlíus fór af velli á sama tíma.

Júlíus var að skora sitt þriðja deildarmark á tímabilinu en það fyrsta síðan hann skoraði tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum í apríl.

Hann er alls með 3 mörk og 3 stoðsendingar af miðjunni í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×