Formúla 1

Rússar og Belarússar fá að keppa aftur

Andri Broddason skrifar
Nikita Mazepin var síðasti Rússinn til að keyra í Formúlu 1 en samning hans var rift eftir innrás Rússlands í Úkraínu
Nikita Mazepin var síðasti Rússinn til að keyra í Formúlu 1 en samning hans var rift eftir innrás Rússlands í Úkraínu Mark Thompson/Getty Images

Ökuþórar mega núna keyra undir bæði fána Rússlands og Belarús í öllum akstursíþróttum. Þjóðsöngur beggja landa hefur einnig fengið leyfi til þess að vera spilaður þegar það á við.

Eftir innrás Rússlands í Úkraínu hefur íþróttafólki frá Rússlandi og Belarús ekki verið leyft að keppa undir sínum fána í ýmsum íþróttum. Bannið er enn þá í gildi í mörgum íþróttum en nú hefur því verið aflétt í akstursíþróttum.

Alþjóðaaksturssambandið FIA tilkynnti í vikunni ákvörðun Alþjóðlega akstursíþróttaráðsins um að leyfa ökumönnum að keyra aftur undir fána Rússlands og Belarús. Einnig fá ökumenn frá þessum löndum fullt leyfi til þess að taka þátt í öllum akstursíþróttum.

Áður fyrr þurftu ökumenn frá þessum löndum að skrifa undir skjal þar sem aðilar viðurkenndu hlutleysi til þess að fá leyfi til að keyra en það er óþarfi núna.

Haldin var Formúla 1-keppni á árunum 2014-2021 í Rússlandi. Eftir innrás Rússlands í Úkraínu var rússneski kappaksturinn tekinn af dagatalinu og hefur ekki snúið aftur síðan. Samningur við rússneska kappaksturinn náði til ársins 2023 og átti þá keppnin að fara fram á annarri braut en vanalega.

Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort kappaksturinn fari aftur á dagatalið en miklar breytingar hafa verið gerðar á dagatalinu síðan keppt var síðast í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×