Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2026 22:32 Suður-Kóreumenn fá hér víti hjá ónefndum dómara en þessi mynd tengist fréttinni ekki beint og umræddur dómari er ekki viðriðinn það. Getty/Alex Livesey Suður-Kórea átti hræðilegt heimsmeistaramót í sumar og nú bætist við hneykslismál tengt leikjum landsliðsins fyrir rúmum áratug.
Suður-Kóreska landsliðið fór taplaust í gegnum sjö landsleiki fyrir meira en áratug en á bak við velgengnina leyndist hneykslismál. Þegar dómararnir komu til landsins var þeim boðið upp á kynlífsþjónustu. Allt var greitt með korti knattspyrnusambandsins. Suður-kóreska knattspyrnusambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu sem byrjar á orðunum: „Skilaboð til knattspyrnuaðdáenda og starfsmanna knattspyrnunnar“. Í framhaldinu kom skilyrðislaus afsökunarbeiðni vegna þess sem átti sér stað í tengslum við landsleiki árin 2011 og 2012. Fyrir undankeppnisleiki fyrir Ólympíuleikana 2012 og HM 2014 var dómurum og leikstjórnendum boðið á svokallaðar nuddstofur og aðrar stofnanir. Police are considering whether to expand their investigation into the Korea Football Association (KFA) over allegations the association provided sexual entertainment to foreign referees between 2011 and 2012, an official said Monday.https://t.co/jI6GndcWGt— The Korea Times (@koreatimescokr) August 10, 2026 Þar greiddi sambandið fyrir kynlífsþjónustu fyrir mennina. Samkvæmt Daily Mail komu dómararnir frá Japan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Íran, Barein og Úsbekistan. „Það var venja að verða við óskum þeirra,“ segja fyrrverandi embættismenn sambandsins í rannsókn sem sjónvarpsstöðin JTBC framkvæmdi. Suður-Kórea fór taplaust í gegnum þá sjö landsleiki sem kynlífsþjónustan var veitt fyrir. Samt sem áður virðist sem landsliðið muni sleppa við agaviðurlög frá FIFA, þar sem flest brot á siðareglum fyrnast á fimm eða tíu árum. Sambandið heldur því fram að verklagsreglur hafi breyst algjörlega frá því hneykslið átti sér stað. Fyrirtækjakortin mega ekki lengur vera notuð í slíkum tilgangi. „Við biðjumst innilega afsökunar á þeim áhyggjum sem við höfum valdið vegna hinna ýmsu vandamála sem varða sambandið og hafa komið í ljós í yfirheyrslum og fordæmalausri húsleit sem og í fréttum af atburðum fyrir meira en áratug síðan sem jafnvel margir innan samtakanna vissu ekki af,“ skrifar KFA í yfirlýsingunni. Football association apologises amid coach appointment controversy and claims of sexual entertainment for foreign referees. https://t.co/3lMwbkkV21 pic.twitter.com/RPXHxUiOsf— Malay Mail (@malaymail) August 9, 2026 Þetta rúmlega tíu ára gamla hneykslismál komst aftur í hámæli vegna annars deilumáls í Suður-Kóreu. Á fimmtudaginn réðst lögreglan inn í höfuðstöðvar KFA til að komast til botns í því hvernig Hong Myung-bo var ráðinn landsliðsþjálfari árið 2024. Eftir að hafa leitað að landsliðsþjálfara í fimm mánuði var Hong skyndilega boðið starfið, sem samkvæmt íþróttamálaráðuneyti landsins braut í bága við innri reglur sambandsins. Suður-Kórea stóð sig illa á HM í sumar. Eftir einn sigur og tvö töp féll liðið úr leik strax í riðlakeppninni.
Suður-Kórea Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Sjá meira