Golf

Guð­rún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili var að spila vel í rigningunni í dag.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili var að spila vel í rigningunni í dag.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili, ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í golfi, átti góðan annan dag í rigningunni í dag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli og meistarinn er því komin á toppinn.

Guðrún Brá lék annan hringinn á tveimur höggum undir pari og lék langbest allra kvenna í dag en engin önnur kona var á undir pari á vellinum á þessum öðrum hring. Guðrún náði með því toppsætinu af Elsu Maren Steinarsdóttur úr Golfklúbbnum Leyni sem var með forystuna eftir fyrsta hringinn.

Guðrún Brá er samanlagt á þremur höggum undir pari eftir tvo fyrstu dagana og er með tveggja högga forskot þrátt fyrir að hafa endað hringinn á skolla.

Elsa Maren lenti í smá vandræðum á seinni níu en hún lék þær á fjórum höggum yfir pari þar af fékk hún tvöfaldan skolla á sextándu holunni. Elsa er samt bara tveimur höggum á eftir Guðrúnu Brá.

Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er þriðja á fjórum höggum yfir pari en hún lék á tveimur yfir í dag. Það eru því fimm högg á milli annars og þriðja sætisins.

Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er síðan fjórða á fimm höggum yfir pari og höggi á eftir henni í sjötta sætinu eru þær Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×