Innlent

Varað við vind­hviðum á Vest­fjörðum

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Vegfarendum sem ætla yfir Hálfdán ber að fara að öllu með gát, vindur í hviðum getur náð 25 metrum á sekúdnu.
Vegfarendum sem ætla yfir Hálfdán ber að fara að öllu með gát, vindur í hviðum getur náð 25 metrum á sekúdnu. Vísir/Vilhelm

Vegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum.

Einnig má búast við snörpum vindhviðum, um 25 metrum á sekúndu, á sunnanverðu Snæfellsnesi eftir hádegi á morgun.

Það dregur síðan úr vindi á Vestfjörðum snemma á laugardag.

Vegfarendur eru beðnir að fara með gát og keyra í samræmi við aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×