Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. ágúst 2026 23:20 Posar frá Verifone hættu að virka í um eina og hálfa klukkustund í kvöld. Getty Fréttastofu bárust í kvöld ábendingar um að greiðslumiðlun hjá bæði Verifone og Rapyd lægi niðri, til að mynda í Laugarásbíói og Sambíóunum. Framkvæmdastjóri Verifone neitar því að bilun hafi átt sér stað og hefur athugasemd hans verið bætt við neðst í þessari frétt. Fregnirnar fengust staðfestar frá starfsfólki bæði Sambíóakeðjunnar og Laugarásbíós en það var ekki tilbúið að koma fram undir nafni. Bæði fyrirtæki nota greiðsluposa Verifone. Starfsfólk lýsir því að bilunin hafi staðið yfir í um einn og hálfan tíma og haft þó nokkur áhrif á starfsemi. Sýningar sem hófust klukkan átta voru nýhafnar þegar bilunin skall á samkvæmt starfsmanni Sambíóa, sem staðfestir að hún hafi haft áhrif á keðjuna alla. „Þetta var dálítið mikið stress,“ viðurkennir starfsmaðurinn. Laugarásbíó nýtir einnig posa frá Verifone og hafði bilunin mikil áhrif á afgreiðslu í hléi sýninga en erfitt reyndist að hefja sýningu myndarinnar aftur á réttum tíma. Bilun í greiðslulausn Rapyb fékkst staðfest frá starfsmanni Nordica-hótels. Hann sagði að hún hefði staðið yfir í um klukkustund. Fréttastofu reyndist ekki unnt að ná sambandi við Rapyd vegna málsins. Hjá Verifone var aðeins í boði að ræða við starfsmann sem sinnir neyðarþjónustu sem útskýrði að hann gæti ekki svarað spurningum fjölmiðla um málið. „Ég get hvorki neitað né staðfest,“ sagði starfsmaðurinn. Veist þú hver skýringin er á bak við bilunina? Lentir þú í biluninni? Við tökum á móti frásögnum og myndum á ritstjorn@visir.is. Uppfært 00:50 Framkvæmdastjóri Verifone á Íslandi, Tryggvi Karl Valdimarsson, sendi fréttastofu skeyti þar sem er farið fram á að fréttinni verði breytt, auk myndar og fyrirsagnar. Tryggvi fullyrðir að engin bilun hafi átt sér stað. „Ég get staðfest að það var ekki bilun í kerfum Verifone,“ segir í skeytinu en engin skýring er gefin á því ástandi sem upp kom í kvöld og fékkst staðfest hjá starfsfólki tveggja fyrirtækja. Greiðslumiðlun Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Fregnirnar fengust staðfestar frá starfsfólki bæði Sambíóakeðjunnar og Laugarásbíós en það var ekki tilbúið að koma fram undir nafni. Bæði fyrirtæki nota greiðsluposa Verifone. Starfsfólk lýsir því að bilunin hafi staðið yfir í um einn og hálfan tíma og haft þó nokkur áhrif á starfsemi. Sýningar sem hófust klukkan átta voru nýhafnar þegar bilunin skall á samkvæmt starfsmanni Sambíóa, sem staðfestir að hún hafi haft áhrif á keðjuna alla. „Þetta var dálítið mikið stress,“ viðurkennir starfsmaðurinn. Laugarásbíó nýtir einnig posa frá Verifone og hafði bilunin mikil áhrif á afgreiðslu í hléi sýninga en erfitt reyndist að hefja sýningu myndarinnar aftur á réttum tíma. Bilun í greiðslulausn Rapyb fékkst staðfest frá starfsmanni Nordica-hótels. Hann sagði að hún hefði staðið yfir í um klukkustund. Fréttastofu reyndist ekki unnt að ná sambandi við Rapyd vegna málsins. Hjá Verifone var aðeins í boði að ræða við starfsmann sem sinnir neyðarþjónustu sem útskýrði að hann gæti ekki svarað spurningum fjölmiðla um málið. „Ég get hvorki neitað né staðfest,“ sagði starfsmaðurinn. Veist þú hver skýringin er á bak við bilunina? Lentir þú í biluninni? Við tökum á móti frásögnum og myndum á ritstjorn@visir.is. Uppfært 00:50 Framkvæmdastjóri Verifone á Íslandi, Tryggvi Karl Valdimarsson, sendi fréttastofu skeyti þar sem er farið fram á að fréttinni verði breytt, auk myndar og fyrirsagnar. Tryggvi fullyrðir að engin bilun hafi átt sér stað. „Ég get staðfest að það var ekki bilun í kerfum Verifone,“ segir í skeytinu en engin skýring er gefin á því ástandi sem upp kom í kvöld og fékkst staðfest hjá starfsfólki tveggja fyrirtækja.
Veist þú hver skýringin er á bak við bilunina? Lentir þú í biluninni? Við tökum á móti frásögnum og myndum á ritstjorn@visir.is.
Greiðslumiðlun Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira