Golf

Er með þriggja högga for­skot fyrir lokahringinn á Opna breska

Andri Broddason skrifar
Yealimi Noh er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska risamótinu í golfi.
Yealimi Noh er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska risamótinu í golfi. Warren Little/Getty Images

Yealimi Noh er í efsta sæti Opna breska risamóts kvenna í golfi eftir slæman hring hjá Haeran Ryu. Hún er með þriggja högga forskot á næstu kylfinga.

Haeran Ryu hefur unnið tvö risamót á árinu og var á góðri leið með að setja sig í frábæra stöðu til að vinna þriðja risamótið sitt á árinu. Það gekk hins vegar ekki hjá henni í dag þar sem hún fékk fimm skolla á átta holu kafla og endaði hringinn á þremur höggum yfir pari.

Yealimi Noh nýtti sér mistök Ryu og lék hringinn í dag á tveimur höggum undir pari. Hún er þá samtals sjö höggum undir pari. Hún virtist ekki ætla að nýta sér mistök Ryu til að byrja með þar sem Noh fékk þrjá skolla á fyrri níu holunum. Hún náði þó að koma sér aftur á strik með því að fá þrjá fugla í röð og samtals fimm fugla á hringnum.

Nelly Korda, kylfingurinn sem er númer eitt á heimslistanum, hefur ekki alveg náð sér á strik á mótinu og er í sextánda sæti á einu höggi yfir pari. Hún virtist ætla að enda hringinn í dag á pari en fékk tvöfaldan skolla á síðustu holunni. Hún er því átta höggum frá Noh í efsta sætinu og því ólíklegt að hún muni ná í sigur á mótinu.

Pakkinn fyrir aftan Noh er þéttur en alls eru fimm kylfingar jafnir í öðru sæti á fjórum höggum undir pari. Það verður því hörð barátta á lokahring mótsins á morgun og geta enn verið miklar sviptingar á töflunni.

Lokahringur Opna breska risamóts kvenna í golfi verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn sport 4 klukkan 11 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×