Fjöldi leikmanna hurfu eftir Gothia Cup-unglingamótið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 13:30 Ungir knattspyrnumenn á Gothia Cup-unglingamótinu en myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/ADAM IHSE Það lítur út fyrir að fjölmargir meðlimir úr eþíópíska fótboltaliðinu hafi reynt að stinga af í tengslum við þátttöku sína á fótboltamóti í Svíþjóð.
Íslendingar þekkja vel Gothia Cup-unglingamótið sem er nýlokið enda tóku fjölmörg íslensk lið þátt í ár. Þeirra sem er saknað eru meðlimir drengjaliðs með leikmönnum á aldrinum fjórtán til sautján ára samkvæmt frétt hjá Göteborgs-Posten. „Enginn er kominn heim. Hugsanlega einn eða tveir leiðtogar,“ segir Ellinor Halldin hjá lögreglunni í Västra Götaland við blaðið. Hvarfið kom í ljós þegar þeir yfirgáfu gistingu sína án þess að láta vita. Internationellt efterlysta • Gothia cup: ”Har haft en bra relation” https://t.co/qHllAFGLrm— Göteborgs-Posten (@GoteborgsPosten) July 28, 2026 Þá lögðu mótshaldarar fram kæru til lögreglu sem „varúðarráðstöfun“ og nú – tíu dögum eftir að mótinu lauk – er enn óvitað hvar þeir eru niðurkomnir. Lögreglan segir við GP að svo virðist sem þeir hafi farið sjálfviljugir. „Ekkert bendir til þess að eitthvað ólöglegt liggi að baki, eins og mansal eða þess háttar,“ sagði Ellinor Halldin við blaðið. Lögreglan í Västra Götaland er nú í sambandi við viðkomandi yfirvöld og segir að hún fái upplýsingar ef Eþíópíumennirnir koma í leitirnar. „Mín reynsla er sú að þeir skili sér yfirleitt smám saman,“ sagði Halldór. Mótshaldarar segja við Expressen að þeir hafi verið í sambandi við leiðtoga í félaginu. Þeir eiga að hafa staðfest að leikmennirnir séu í lagi og að þeir hafi verið í sambandi við fjölskyldur sínar. „Ég er hissa á því að þeir hafi ekki farið heim, eða hvort þeir hafi ekki farið heim. Við vitum jú ekki hvar þeir eru. Okkur finnst þetta undarlegt því þetta er lið sem við eigum í góðu sambandi við, þeir hafa verið með áður,“ sagði Fredrik Beckman, fjölmiðlafulltrúi mótsins. View this post on Instagram A post shared by SportExpressen.se (@sportexpressen)
Svíþjóð Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fleiri fréttir Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Sjá meira