Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. júlí 2026 17:00 Listamennirnir Þorleifur Thorlacius Þrastarson og Rökkvi Kárason voru með frumlega tískusýningu í bílakjallara í Kópavogi. Hjördís Björk Hjartardóttir Mörkin á milli tísku, myndlistar og gjörningalistar eiga það til að vera óljós og eitt listform flæðir gjarnan yfir í annað. Listamennirnir Þorleifur Thorlacius Þrastarson og Rökkvi Kárason hafa verið að leika sér að einmitt þessu í sköpun sinni og afhjúpuðu afraksturinn með allsherjar tískusýningu í bílakjallara Molans í Kópavogi.
Listamennirnir tveir þróuðu verkið í Skapandi sumarstörfum Kópavogs þar sem ungt listafólk fær tækifæri til að vinna að eigin verkefnum frá hugmynd að opinberri frumkynningu. Bílakjallaranum va umbreytt í hrátt sýningarrými með sviðsreyk, ljósum, tónlist og stemningu og um 80 gestir sóttu sýninguna. Ósamhverfa er á mörkum fatahönnunar, myndlistar og gjörningalistar. Flíkurnar voru unnar úr máluðum striga þar hönnuðirnir lögðu sérstaka áherslu á form, áferð og hreyfingu frekar en hið hefðbundna notagildi. Hrátt yfirbragð bílakjallarans varð hluti af verkinu og skapaði að sögn strákanna sterka andstæðu við hefðbundinn tískuheim. Í miðju sýningarrýminu stóð Þorleifur umkringdur hljóðnemum án þess að segja orð. Þögnin var meðvitaður hluti af verkinu og átti að vekja spurningar um væntingar áhorfenda. „Við búum í samfélagi þar sem áreitið er endalaust og athyglin er endalaust bundin við símaskjáinn. Við bíðum eftir næstu tilkynningu, næsta myndbandi eða bara því að einhver segi eitthvað. Okkur langaði að skapa þessa eftirvæntingu en gefa áhorfendum ekki endilega það sem þeir biðu eftir. Stundum segir þögnin allt sem segja þarf,“ segir Rökkvi og bætir við: „Við höfum lært ótrúlega mikið í sumar, bæði um okkar eigin listsköpun og allt sem þarf að gerast á bak við tjöldin til að svona sýning verði að veruleika. Skapandi sumarstörfin gáfu okkur frelsi til að taka áhættu og prófa hluti sem við hefðum líklega ekki getað gert annars staðar. Þetta byrjaði sem hugmynd á blaði og allt í einu stóðum við í rými með um áttatíu gestum sem voru komnir til að upplifa það sem við höfðum búið til. Það var bæði yfirþyrmandi og ótrúlega hvetjandi.“ Hér má sjá myndir frá sýningunni: Óhefðbundin efni í bland við þægindi.Hjördís Björk Hjartardóttir Gleðin var við völd hjá fyrirsætunum.Hjördís Björk Hjartardóttir Mögulegur brúðarkjóll fyrir frumlega tískuskvísu?Hjördís Björk Hjartardóttir Fyrirsæturnar ganga út úr rýminu.Hjördís Björk Hjartardóttir Þorleifur sat í þögninni.Hjördís Björk Hjartardóttir Rökkvi í buxum og ber að ofan.Hjördís Björk Hjartardóttir Reykurinn spilaði veigamikið hlutverk.Hjördís Björk Hjartardóttir Skemmtilegur jakki, eða kjóll, eða bæði.Hjördís Björk Hjartardóttir Strákarnir léku sér að mörkum hönnunar, myndlistar og gjörnings.Hjördís Björk Hjartardóttir Bílakjallari getur reynst nytsamlegur fyrir tískusýningu.Hjördís Björk Hjartardóttir Hönnuðirnir á arkinu.Hjördís Björk Hjartardóttir Margt var um manninn.Hjördís Björk Hjartardóttir Listaverk á veggjunum var skemmtilegt tvist.Hjördís Björk Hjartardóttir Berfætt í gráu síðpilsasetti sem strákarnir máluðu á.Hjördís Björk Hjartardóttir Gestir ýmis stóðu eða sátu og fylgdust gaumgæfilega með sýningunni.Hjördís Björk Hjartardóttir Skvís!Hjördís Björk Hjartardóttir Dramatík!Hjördís Björk Hjartardóttir Rökkvi einbeittur.Hjördís Björk Hjartardóttir Smá marbendils-fílingur.Hjördís Björk Hjartardóttir Þessi fyrirsæta átti ekki erfitt með að ganga í krefjandi flíkinni.Hjördís Björk Hjartardóttir Hvítu reimarnar á bakinu poppa skemmtilega upp á fittið. Sýningin er afrakstur Skapandi sumarstarfa Kópavogs.Hjördís Björk Hjartardóttir Skuggarnir skemmtilegir.Hjördís Björk Hjartardóttir Hálskragarnir vöktu athygli á flíkunum.
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fleiri fréttir Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Sjá meira