Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Eiður Þór Árnason skrifar 27. júlí 2026 14:14 Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor segir rangfærslur hafa komið fram í umræðunni. HR „Varanlegar undanþágur hafa verið hluti af ESB frá upphafi og það er ekkert í regluverki ESB eða neitt sem hefur breyst í stofnsáttmálum sem útilokar að hægt sé að ná varanlegum undanþágum eða ótímabundnum sérlausnum í aðildarsamningi.“
Þetta segir Gunnar Þór Pétursson, prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík. Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í heimastjórninni á Álandseyjum, fer yfir það í grein á Vísi hvernig sjálfstjórnarsvæðið sem er hluti af Finnlandi náði fram varanlegum undanþágum þegar Finnland varð hluti af Evrópusambandinu (ESB) árið 1995. Fallist var á þrjár kröfur: 1) að einungis fólk með álenskan ríkisborgararétt mætti eiga þar fasteign og reka fyrirtæki, 2) Áland yrði áfram herlaust og hlutlaust svæði og 3) að tollfrjáls sala yrði áfram leyfð í ferjusiglingum milli Álands og nágrannalanda. Ekki er hægt að breyta bókun um þessi atriði nema með samþykki allra aðildarríkja ESB. Gunnar segir þetta skýrt dæmi um ótímabundna undanþágu frá aðalregluverki ESB og dæmi séu um enn víðtækari undanþágur í aðildarsamningum ríkja. „Aðildarsamningar í gegnum tíðina hafa haft bæði tímabundnar og ótímabundnar undanþágur. Það sem hérna er lýst eru mjög víðtækar undanþágur en fyrir afmarkað svæði.“ Danmörk þurfti ekki að innleiða varnarmálastefnu Einnig eru dæmi um að aðildarríki ESB hafi ákveðið að innleiða ekki breytingar á stofnsáttmálum sambandsins sem hafi verið samþykktar eftir inngöngu þeirra. „Danmörk fékk varanlega undanþágu þegar þeir gengu inn í Evrópusambandið 1973. Svo þegar evran var tekin inn og jafnframt hin svokallaða öryggis- og varnarmálastefna þá fengu þeir undanþágu frá því.“ Þannig hafi ríkið fengið varanlega undanþágu frá heilli stefnu. Sömuleiðis hafi Bretland fengið undanþágu frá þátttöku í Schengen-landamærasamstarfinu og upptöku evru. Þingfundur Evrópuþingsins í Strassbourg í Frakklandi.EPA/RONALD WITTEK Gunnar segir að það sem hafi breyst á síðustu áratugum sé að aðildarríkjum ESB hafi fjölgað og umfang ESB-samstarfsins sömuleiðis aukist. Þetta geti gert það erfiðara en áður fyrir öll aðildarríki að ná saman um veitingu undanþága. Sátu hjá og fengu undanþágu Gunnar bætir við að ef til stendur að útvíkka ESB-samstarfið á ný svið og breyta stofnsáttmálum sambandsins eftir að nýtt ríki hefur fengið aðild þurfi samþykki þess og allra annarra aðildarríkja. „Það er ekki hægt að þvinga eitt ríki til þess. Danmörk og Bretland voru ekki til í að fara þessa leið og þetta var niðurstaðan. Öll önnur ríki héldu þá áfram og það var eins með evruna,“ segir Gunnar. Vísar hann þar til áðurnefndrar öryggis- og varnarmálastefnu og Schengen-samstarfs. Erfitt en ekki útilokað Andstæðingar Evrópusambandsins hafa í einhverjum tilvikum haldið því fram að varanlegar undanþágur séu ekki í boði. Gunnar gerir athugasemd við þessa umræðu. „Ég hef bent á að þetta sé ekki fyrir fram útilokað. Munurinn liggur í því, er eitthvað útilokað eða er það hægt þótt það sé erfitt? Það er alveg eðlismunur á því.“ „Það er búið að skauta fram hjá mjög skýrum dæmum og halda því fram að þetta sé útilokað. Það er ekki neitt í regluverki ESB sem styður það,“ segir Gunnar Þór Pétursson, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Tengdar fréttir Varanlegar undanþágur eru möguleiki Í umræðunni um mögulegar aðildaviðræður Íslands að ESB hafa andstæðingar aðildar fullyrt að ótímabundnar undanþágur séu ekki í boði.Því langar mig að koma á framfæri minni reynslu af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB og skrifa þar út frá reynslu minni þegar Finnland sótti um og fékk inngöngu í ESB 1995. 26. júlí 2026 10:02 Segir ótímabært að ræða undanþágur Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra. 20. júlí 2026 18:52 Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Umræða um mögulegar undanþágur Íslands frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins hefur vakið viðbrögð á þingum Danmerkur og Hollands. 10. júlí 2026 13:58 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira
Varanlegar undanþágur eru möguleiki Í umræðunni um mögulegar aðildaviðræður Íslands að ESB hafa andstæðingar aðildar fullyrt að ótímabundnar undanþágur séu ekki í boði.Því langar mig að koma á framfæri minni reynslu af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB og skrifa þar út frá reynslu minni þegar Finnland sótti um og fékk inngöngu í ESB 1995. 26. júlí 2026 10:02
Segir ótímabært að ræða undanþágur Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra. 20. júlí 2026 18:52
Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Umræða um mögulegar undanþágur Íslands frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins hefur vakið viðbrögð á þingum Danmerkur og Hollands. 10. júlí 2026 13:58