Formúla 1

Ung­verski kapp­aksturinn myndaður af for­seta landsins

Andri Broddason skrifar
Petr Pavel er forseti Ungverjalands en áhugamálið hans er að taka myndir af mótorsporti.
Petr Pavel er forseti Ungverjalands en áhugamálið hans er að taka myndir af mótorsporti. Kym Illman/Getty Images

Petr Pavel, forseti Ungverjalands, var viðstaddur ungverska kappaksturinn í Formúlu 1 í dag. Hann var þó ekki í formlegri heimsókn heldur var hann að vinna sem myndatökumaður.

Lando Norris vann ungverska kappaksturinn í dag og er þetta fyrsti sigur hans síðan hann varð heimsmeistari í Formúlu 1 á síðasta ári. Mikið af myndatökumönnum eru í kringum brautina til að ná myndum af bestu ökumönnum heims keyra hröðustu bíla heims. Margir eru með önnur störf fyrir utan að taka myndir en þau geta verið mismunandi.

Petr Pavel var staddur til að taka myndir af Formúlu 1-kappakstrinum í Ungverjalandi en árið 2023 var hann kosinn forseti Ungverjalands og er hann enn ríkjandi forseti. Áður en Pavel varð forseti starfaði hann í hernum og hefur aðstoðað NATO við að skipuleggja varnir bandalagsins.

Fyrir utan að starfa við hernað og vera forseti Evrópuríkis er áhugamálið hans að taka myndir af alls konar mótorsporti. Fyrr í sumar var Pavel staddur í Frakklandi að mynda sögufrægu 24 tíma Le Mans keppnina.

Pavel er góður myndatökumaður og voru myndir sem hann tók á Dakar Rallýinu árið 2025 til sýnis á safni í Prag. Einnig hefur hann safnað peningum til góðgerðarmála með því að bjóða myndaalbúm á uppboði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×